Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
12:15 - 13:00

Núna

Pet Shop Boys

Always On My Mind

Næst

Katy Perry

Last Friday Night

„Ég er bara enn­þá ég.“

Bítið skrifar
„Ég er bara enn­þá ég.“
Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, sem notar listamannsnafnið Sigga Ózk, var um helgina krýnd Ungfrú Ísland. Hún segir titilinn munu breyta miklu, þó hann breyti henni ekki sem manneskju, en keppnishaldari segir hana hafa skarað fram úr bæði á sviði og í dómaraviðtali.

Sigga Ózk og Manuela Ósk, keppnishaldari, ræddu keppnina og framhaldið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

Sigga Ózk sagði sigurinn stóran áfanga, en lagði áherslu á að hún væri enn sama manneskjan.

„Þetta mun breyta miklu. En þetta mun samt ekkert breyta mér. Ég er bara ennþá ég.“

Hún sagði að næstu dagar færu meðal annars í að móta betur hvað hún vildi gera með titilinn, en hún hefði þegar sterka löngun til að halda áfram að gefa af sér.

Dómaraviðtalið tók mest á

Þótt Siggu Ózk líði vel á sviði sagði hún dómaraviðtalið hafa verið sá hluti keppninnar sem reyndi mest á. Hún líkti því við prufur fyrir söngleik þar sem þurfi að standa sig fyrir framan alvarlega dómara.

„Mér fannst viðtalið mest stressandi. Mér finnst ekki stressandi að fara upp á svið.“

Hún viðurkenndi jafnframt að hafa farið nánast í „blackout“ í viðtalinu og sagðist hafa upplifað spennufall þegar því lauk. Eftir á hefði hún setið uppi með fullt af svörum sem hún vildi óska að hún hefði komið betur frá sér.

Manuela segir hana hafa brillerað

Manuela Ósk sagði það hafa verið áberandi í keppninni hvað Siggu Ózk nyti sín vel á sviði og gæfi mikið af sér. Hún sagði einnig að henni hefði gengið mjög vel í dómaraviðtalinu, þótt hún sjálf hefði ekki upplifað það þannig.

„Hún bara brilleraði í viðtalinu.“

Að sögn Manuelu er dómnefndin skipuð fólki úr ólíkum áttum og því sé aldrei þannig að allir séu að horfa nákvæmlega á sömu þættina. Markmiðið sé að fá sem heildstæðasta mynd af keppendum, enda fylgi titlinum talsverð ábyrgð.

Vill halda áfram að syngja og vinna með börnum

Spurð hvað tæki við sagðist Sigga Ózk vilja halda áfram á svipaðri braut og hún hefur þegar verið á. Hún nefndi sérstaklega að hana langaði áfram að syngja fyrir börn og eldra fólk og að vinna með ungu fólki.

Sigga Ózk sagðist meðal annars fara á Barnaspítalann að syngja, heimsækja elliheimili og sinna kennslu. Þá er hún þessa dagana að leikstýra söngleik í Keflavík með börnum og ungmennum á aldrinum sex til átján ára.

Að hennar sögn er það einmitt sú leið sem hún vill fara með titlinum: að halda áfram að hafa góð áhrif og gefa af sér.

Fleiri greinar