Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Benson Boone

Slow It Down

Næst

Friðrik Dór

Þessi Kjóll

Gagn­rýnir harð­lega fyrir­hugaða inn­leiðingu hælisleitendapakka ESB

Reykjavík síðdegis skrifar
Gagn­rýnir harð­lega fyrir­hugaða inn­leiðingu hælisleitendapakka ESB
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýndi harðlega í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni það sem hann kallar fyrirhugaða aðlögun Íslands að hælisleitendapakka Evrópusambandsins. Hann segir málið fela í sér verulega skerðingu á yfirráðum Íslands yfir eigin landamærum og að með því sé stigið stórt skref í átt að aukinni aðlögun að Evrópusambandinu á viðkvæmu sviði.

Tilefni umræðunnar var færsla Sigmundar á Facebook þar sem hann lýsti yfir áhyggjum af því að á Alþingi yrði mælt fyrir frumvarpi sem tengdist hælisleitendapakka ESB. Í þættinum sagði hann að um væri að ræða mál sem ekki félli undir EES-samninginn og hefði verið umdeilt víða innan Evrópusambandsins.

Segir pakkann færa Brussel aukin völd

Að sögn Sigmundar gengur hælisleitendapakkinn í meginatriðum út á að stofnanir Evrópusambandsins fái aukin völd til að ákveða hvert hælisleitendur verði sendir innan Evrópu. Hann hélt því fram að með því myndi Ísland missa enn frekar stjórn á því hverjir kæmu hingað til lands og hverjir fengju hér vernd.

Jafnframt sagði hann að með breytingunum yrði Dyflinnarreglugerðin í reynd afnumin, en hún hafi hingað til byggst á þeirri meginreglu að umsókn um alþjóðlega vernd skuli almennt tekin fyrir í fyrsta örugga landinu sem umsækjandi kemur til. Sigmundur sagði þá reglu hafa hentað Íslandi vel vegna landfræðilegrar stöðu landsins.

Hann sagði að Ísland ætti ekki sjálfkrafa að taka þátt í nýju kerfi þótt önnur ríki kysu að breyta fyrra fyrirkomulagi. Að hans mati fæli slíkt í sér að Ísland gæfi eftir hluta af fullveldi sínu.

Telur ríkisstjórnina senda misvísandi skilaboð

Í viðtalinu sagðist Sigmundur Davíð jafnframt undrast að málið væri lagt fram á sama tíma og stjórnvöld hefðu talað fyrir hertari aðgerðum í útlendingamálum, meðal annars með auknu landamæraeftirliti, fjölgun lögreglumanna og breytingum á regluverki.

Hann sagði þær aðgerðir sem ráðist hefði verið í að hans mati aðeins vera skref í rétta átt en þó ekki nægja til að takast á við þann vanda sem hann telur vera til staðar. Sérstaklega gagnrýndi hann að aðgerðir stjórnvalda væru að hans mati fyrst og fremst viðbragðsmiðaðar, fremur en að taka á rót vandans.

Þá sagði hann mikilvægt að frumvarp um farþegalista hefði loks orðið að lögum en bætti við að slíkar aðgerðir einar og sér dygðu ekki ef stjórnvöld hefðu ekki næga stjórn á því hverjir kæmu til landsins.

Sigmundur Davíð sagðist einnig telja tímasetningu málsins athyglisverða í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um samskipti Íslands og Evrópusambandsins. Hann sagði það koma sér mjög á óvart að ríkisstjórnin skyldi setja á dagskrá mál sem hann telur fela í sér aðlögun að Evrópusambandinu á einu viðkvæmasta sviði stjórnmálanna.

Í lok viðtalsins sagðist hann óttast að málið yrði samþykkt á Alþingi þrátt fyrir gagnrýni og ábendingar sem kynnu að koma fram. Hann sagði niðurstöðuna að sínu mati geta orðið þá að Ísland missti sjálfstæða stjórn á því hverjir fengju að koma hingað til lands.

Fleiri greinar