Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Bruce Springsteen

Dancing In The Dark

Næst

Bruce Springsteen

Dancing In The Dark

Óskar á Argentínu undir­býr grillið fyrir sumarið

Reykjavík síðdegis skrifar
Óskar á Argentínu undir­býr grillið fyrir sumarið
Margir eru þessa dagana að opna grillið eftir vetrardvalann, en Óskar Finnsson, veitingamaður og matreiðslumaður, segir mikilvægt að byrja á góðri hreinsun áður en fyrsta steikin fer á teinana. Hann segir nóg að fá hlýja daga til að óboðnir gestir fari að gera sig heimakomna í grillinu.

Óskar, sem margir þekkja sem Óskar á Argentínu, fór yfir grillráð í Reykjavík síðdegis og sagði að fyrsta skrefið væri einfalt: taka grindurnar af, skafa innan úr grillinu og þrífa vel áður en kveikt er upp.

Byrja á að þrífa grillið vel

Að sögn Óskars þarf ekki langan tíma í hlýindum til að alls konar óværa og óhreinindi fari að safnast í grillið, sérstaklega ef þar eru enn matarafgangar, fita og sykur frá síðasta tímabili.

„Ég myndi alltaf byrja á því að opna grillið, rífa grindurnar upp og skafa bara úr því með kíttispaða eða einhverju.“

Hann sagði grindurnar eiga að fara í vatn og vera skrúbbaðar vel, til dæmis með vírbursta eða grófri stálull. Síðan ætti að smyrja þær með olíu áður en grillið er hitað vel upp.

Leyfa grillinu að hitna 

Óskar sagði sápuna sjálfa ekki skipta öllu máli, svo lengi sem hún sé skoluð mjög vel af. Mikilvægara sé að leyfa grillinu að hitna almennilega áður en maturinn fer á í tíu mínútur eða korter. 

Hann mælti líka með því að bera olíu vel á grindurnar, annaðhvort með pensli eða eldhúspappír, svo maturinn festist síður.

Þegar kemur að grillmatnum sjálfum sagði Óskar að grunnurinn væri einfaldlega gott hráefni. Um hamborgara sagði hann að hann kryddaði þá sjálfur yfirleitt aðeins með salti og pipar og setti þá svo á mjög heitt grill.

Að hans sögn þarf grillið að vera funheitt og leyfa borgaranum að mynda góða brúnun áður en honum er snúið. Ef reynt sé að snúa honum of snemma fari hann bara í sundur.

Fituminni borgari er ekki endilega betri

Óskar sagði fituna skipta meira máli en margir geri sér grein fyrir, bæði í hamborgurum og steikum. Hann sagði að feitari hamborgari gæfi betri niðurstöðu á grillinu.

„Því hærri fituprósenta í hamborgaranum, því betri hamborgari.“

Sama gilti um steikur. Hann sagði lykilatriði að elda þær ekki of mikið og leyfa þeim svo að hvíla í nokkrar mínútur eftir grillun svo safinn haldist betur í kjötinu.

Gasgrill fyrir hversdagsmat, kolagrill þegar gera á vel við sig

Óskar sagði bæði gasgrill og kolagrill eiga rétt á sér, en að hann notaði þau við ólíkar aðstæður. Ef hann væri bara að grilla fyrir fjölskylduna á venjulegu kvöldi færi hann á gasgrillið. Ef hins vegar ætti að gera sérstaklega vel við sig, til dæmis um helgi með góðum steikum, færi hann frekar í kolin.

„Ef ég væri að bjóða einhverjum í mat á laugardaginn, þá set ég upp kolagrill.“

Að hans mati er bragðmunur á þessu tvennu, þó hann segi ekki hægt að fullyrða að annað sé betra en hitt. Það fari einfaldlega eftir tilefninu og smekk hvers og eins.

Í lok viðtalsins sagði Óskar að Steikarbókin hans, sem kom út fyrir jólin og seldist upp, færi aftur í prentun í byrjun maí. Í nýju útgáfunni verði meðal annars bætt við fleiri grillráðum, bæði fyrir gas og kol.

Fleiri greinar