Heilsuvara vikunnar á Bylgjunni er súperfæða með stóru essi. Við erum að tala um íslenskt spergilkál sem er brakandi ferskt og stútfullt af hollustu. Spergilkálið er sannkölluð vítamínsprengja. Það er hitaeiningasnautt en inniheldur mikið af vítamínum, steinefnum, trefjum.
Spergilkál má sjóða, grilla, steikja á pönnu eða borða ferskt. Hafið í huga að stór hluti næringargildisins liggur í stilkunum.
Skráðu þig inn á Bylgjan.is og þú gætir unnið smekkfullan kassa af brakandi fersku íslensku grænmeti frá Sölufélagi garðyrkjumanna.
Þessi grein er unnin í samstarfi við Sölufélag garðyrkjumanna.









