Ívar Halldórs
Ívar Halldórs
18:55 - 23:59

Núna

Tweety

Gott Mál

Næst

Alex Warren

Fever Dream

Slökkvi­liðs­stjóri varar við grillbrunum um helgina: „Getur endað með ó­sköpum“

Reykjavík síðdegis skrifar
Slökkvi­liðs­stjóri varar við grillbrunum um helgina: „Getur endað með ó­sköpum“
Veðurblíðan sem nú ríkir víða um landið mun án efa leiða marga að grillinu um helgina. Slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir þó mikilvægt að fólk hugi vel að öryggi áður en kveikt er upp, enda geti kæruleysi við grillnotkun haft alvarlegar afleiðingar.

Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, ræddi grillöryggi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og sagði að algengasta orsök vandræða væri uppsöfnuð fita í grillum.

„Þetta er ánægjuleg athöfn og góð fyrir magann, en getur endað með ósköpum og hefur gert það stundum,“ sagði Pétur.

Fitan getur orðið að stóru báli

Hann segir marga gleyma að hreinsa grillið reglulega eftir notkun. Fita safnist bæði á grilljárnum og í fitubökkum undir grillinu.

Þegar hitinn verður mikill og lokið sett á grillið getur kviknað í fitunni sem safnast hefur fyrir.

„Það er ósjaldan sem kviknar í grillunum sjálfum eða í fitunni inni í grillinu og það getur orðið af þessu mikið bál,“ sagði hann.

Pétur mælir með því að fitubakkar séu tæmdir reglulega, gjarnan eftir tvær til þrjár grillferðir.

Grill undir þaki geta valdið húsbrunum

Slökkviliðsstjórinn bendir á að margir hafi reist skjól yfir grillin sín til að verjast íslenskri veðráttu. Slík skjól séu oft tengd húsum eða staðsett undir þakskyggnum.

Þar geti skapast veruleg hætta ef eldur kviknar í grillinu.

„Það hafa margoft orðið húsbrunar. Eldurinn hefur læst sig í þakkanta eða veggi húsa og stundum hafa gluggar sprungið vegna hitans,“ sagði hann.

Hann leggur áherslu á að grill séu ekki staðsett undir þökum eða of nálægt húsveggjum og gluggum.

Loka þarf fyrir gaskútinn

Pétur segir einnig mikilvægt að geta komist greiðlega að gaskútnum ef eldur kviknar.

„Við þurfum auðvitað að loka fyrir gasgjafann. Það er ekki nóg að bíða eftir að fitan brenni úr sér ef við erum enn að fóðra hitann með gasi.“

Hann telur hentugast að gaskúturinn sé staðsettur við hlið grillsins fremur en inni í lokuðu hólfi undir því.

Þá hvetur hann fólk til að óttast ekki um of að skrúfa fyrir gaskútinn þótt eldur sé kominn upp.

„Margir óttast að kúturinn springi og allt fari í voða. Það gerist ekki svo hratt og yfirleitt eru öryggisventlar á þessum kútum.“

Vatn og lokað grill geta slökkt eldinn

Komi upp fitubrunni inni í grillinu segir Pétur einfalt ráð geta reynst vel.

Eftir að slökkt hefur verið á gasinu má skvetta litlu magni af vatni inn í brunahólfið og loka síðan lokinu strax.

„Vatnsgufan sem myndast slökkvir eldinn í grillinu.“

Hann útskýrir að einn lítri af vatni geti breyst í um 1.700 lítra af gufu.

„Það verður gríðarleg þensla af vatnsgufu inni í rýminu sem drepur eldinn bara strax.“

Þegar spurt var um slökkvitæki sagði hann besta tækið einfaldlega vera það sem væri næst þegar á þyrfti að halda.

Gróðureldahætta lítil sem stendur

Þrátt fyrir þurrk og hlýindi undanfarinna daga segir Pétur ekki sérstaka hættu á gróðureldum í Árnessýslu um þessar mundir.

„Við fengum rigningu á flestum svæðum í nótt og það er ekki eldfimt ástand hjá okkur núna.“

Hann bendir þó á að enn sé sina víða í botni gróðurs sem geti þornað hratt.

Varar við einnota grillum og eldstæðum

Fólk sem hyggst verja helginni í sumarbústöðum eða úti í náttúrunni er einnig hvatt til að sýna aðgát.

Pétur segir mikilvægt að hafa gróðurfrí svæði í kringum bústaði og passa að einnota grill séu eingöngu notuð á hörðu undirlagi.

„Alltaf að setja þau á möl eða steina. Aldrei beint í gróður.“

Einnig minnir hann á að skilja aldrei eftir logandi eldstæði eða útielda án eftirlits.

„Neistar geta skotist út og læst sér í þurran gróður eða bara pallinn.“

Fátt fallegra en góður eldur

Þrátt fyrir að starf hans snúist að miklu leyti um að slökkva elda segir Pétur að flestir slökkviliðsmenn hafi mikla ánægju af eldi þegar rétt er farið með hann.

„Það er fátt fallegra en góður eldur. Ég held að flestir slökkviliðsmenn séu miklir áhugamenn um elda og fegurðina sem því fylgir.“

Hann vonast til að landsmenn njóti helgarinnar en geri það með öryggið að leiðarljósi við grillið.

Fleiri greinar