Stefán sagði sveitarstjórnarkosningarnar skipta miklu máli af því þær snerust um nærumhverfi fólks, ekki síður en stóru pólitísku línurnar. Hann sagðist hafa ferðast víða um land í aðdraganda kosninga og rætt við oddvita í fjölda sveitarfélaga, enda væri margt undir í kosningum sem snerust um daglegt líf fólks.
Jakob beindi sjónum meðal annars að stöðunni í Reykjavík og taldi að úrslitin þar gætu orðið flókin þegar kæmi að meirihlutamyndun. Stefán tók í svipaðan streng og sagði að spennandi yrði að sjá hvernig samstarfsmöguleikar þróuðust eftir talningu.
Þeir félagar fóru svo út fyrir kosningabaráttuna. Jakob nefndi golfið sérstaklega, enda væri þar mikið að gerast. Hann ræddi meðal annars nýja stöðu sem væri komin upp eftir að golfklúbbum var gert ljóst að þeir mættu ekki halda úti biðlistum með sama hætti og áður. Það sýndi að hans mati vel hversu mikið golfið hefði vaxið og hve mikil ásókn væri í íþróttina.
Stefán valdi sér hins vegar allt annað efni sem stóð upp úr í vikunni, en það var koma Uppsala-Eddu til landsins. Hann lýsti því sem einstöku tækifæri að geta séð handritið í Eddu, húsi íslenskunnar, og sagði slíka menningarviðburði vel þess virði að gefa sér tíma í.









