Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Ragga Gröndal

Má ég?

Næst

Ragga Gröndal

Má ég?

Segir Úkraínu­menn hafa stöðvað vorsókn Rússa

Bítið skrifar
Segir Úkraínu­menn hafa stöðvað vorsókn Rússa
Staðan í stríðinu í Úkraínu er enn afar brothætt, en að sögn Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings hafa Úkraínumenn náð að stöðva vorsókn Rússa og valda þeim verulegu tjóni, bæði við víglínuna og djúpt inni í Rússlandi. Hann sagði í Bítinu á Bylgjunni að stríðið væri enn mulningsstríð þar sem hvorugur aðili næði afgerandi yfirhöndinni.

Erlingur sagði að þriggja daga vopnahlé sem tengdist meðal annars hátíðahöldum í Rússlandi hefði í reynd aldrei orðið algjört. Árásir hefðu haldið áfram og Rússar meðal annars nýtt hléð til að færa til lið og birgðir.

Vopnahléð skilaði litlu

Að sögn Erlings er það flóknara en svo að vopnahlé verði að veruleika með einfaldri yfirlýsingu leiðtoga.

„Alvöru vopnahlé er miklu flóknara heldur en bara að einhver leiðtogi segi það.“

Hann sagði einnig að fyrirhuguð fangaskipti, þar sem rætt hafði verið um að skipt yrði á þúsund föngum, hefðu ekki gengið eftir.

Vorsókn Rússa hefur ekki tekist

Erlingur sagði að Rússar hefðu, eins og áður, reynt að nýta vorið og þurrari aðstæður til að sækja fram. Í þetta sinn hefði það þó ekki gengið.

Að hans mati hefðu Úkraínumenn náð ákveðnum yfirburðum með drónum við víglínuna og Rússar hefðu hvorki náð að vinna verulega á né halda uppi þeirri sókn sem þeir hefðu stefnt að.

Erlingur sagði að ein stærsta breytingin undanfarið væri sú að Úkraínumenn hefðu þróað eigin langdræg vopn, bæði dróna, stýriflaugar og eldflaugar, sem gerðu þeim kleift að ráðast dýpra inn í Rússland en áður.

Þar hefðu þeir meðal annars beint árásum að orkukerfi og innviðum sem skipta máli fyrir útflutning og efnahag Rússa. Að hans sögn hefði þetta haft raunveruleg áhrif á getu Rússa til að nýta sér hátt olíuverð.

Mikið mannfall heldur áfram

Erlingur sagði mannfall Rússa áfram gríðarlegt. Samkvæmt mati sem hann vísaði til hafi heildartjón Rússa í stríðinu verið komið í um 1,3 milljónir manna, þar af yfir þrjú hundruð þúsund fallnir.

Hann sagði að á síðasta ári hefði mannfall þeirra verið metið um 35 þúsund á mánuði og að markmið Úkraínumanna nú væri í raun að auka þetta enn frekar, til að veikja getu Rússa til að manna herinn að nýju.

Friður ekki í sjónmáli

Þótt tónninn frá Vladimír Pútín hafi að sögn Erlings breyst örlítið sé friður enn ekki í sjónmáli. Bandaríkin hafi dregið sig nokkuð út úr tilraunum til að miðla málum og Evrópuríki séu farin að ræða meira sín á milli hvernig megi binda endi á átökin.

Enn sé langt á milli stríðsaðila.

Óánægja í Rússlandi farin að sjást

Aðspurður um stöðu Pútíns innanlands sagði Erlingur fyrstu raunverulegu merki um óánægju almennings hafa komið fram eftir að stjórnvöld fóru að takmarka netaðgang og loka fyrir ýmis samskiptaforrit.

Hann sagði þó erfitt að lesa nákvæmlega í stöðuna innan Rússlands og taldi að ef breyting yrði á valdi Pútíns myndi hún líklega koma mjög skyndilega og án mikilla fyrirboða.

Fleiri greinar