Bylgjutónlist
Bylgjutónlist
00:00 - 06:50

Núna

Sálin Hans Jóns Míns

Hjá Þér

Næst

Kevin Powers & Shaboozey

Move On

Starfs­hópur um húsnæðislánakerfið: „Verð­tryggingin er fíllinn í her­berginu“

Reykjavík síðdegis skrifar
Starfs­hópur um húsnæðislánakerfið: „Verð­tryggingin er fíllinn í her­berginu“
Starfshópur um húsnæðislánakerfið hefur tekið til starfa og á að skila tillögum í mars á næsta ári. Hlutverk hópsins er meðal annars að fara yfir áhrif svonefndra vaxtadóma og skoða hvernig megi móta nýtt húsnæðisfjármögnunarkerfi hér á landi með hliðsjón af erlendum fyrirmyndum.

Þetta kom fram í viðtali við Marinó G. Njálsson, ráðgjafa og formann starfshópsins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Að sögn Marinós er markmiðið að auka gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur á húsnæðislánamarkaði. „Lánþegar eiga að vita betur að hverju þeir ganga,“ sagði hann.

Spurður hvort stefnt væri að lægri vöxtum sagði Marinó það ávallt vera markmiðið þótt engar niðurstöður lægju enn fyrir. Hann ítrekaði að starfshópurinn væri rétt að hefja störf og að verkefnið væri umfangsmikið og flókið.

Segir verðtrygginguna kjarna vandans

Í viðtalinu sagði Marinó að að hans mati væri verðtryggingin „fíllinn í herberginu“.  Hann sagðist hafa verið þeirrar skoðunar í nær tvo áratugi að nauðsynlegt væri að afnema hana.

Hann rifjaði upp að þegar hann starfaði með Hagsmunasamtökum heimilanna hafi verið settar fram hugmyndir um að byrja á því að setja þak á verðbætur, fyrst 4 prósent á ári, og síðan lækka það stig af stigi þar til verðtrygging hyrfi alveg.

Að hans mati hefur núverandi fyrirkomulag leitt til þess að lántakar beri of mikla áhættu vegna sveiflna í hagkerfinu. Hann sagði jafnframt að verðbætur á lánum ýttu undir launakröfur og þar með verðbólgu, þar sem hækkanir á höfuðstól lána kölluðu á hærri tekjur til að standa undir afborgunum.

Ekki bara spurning um lóðaskort

Bent var á að fleiri þættir hefðu áhrif á stöðu húsnæðismarkaðarins, svo sem lóðaskortur og takmarkað framboð. Marinó sagði það vissulega tengjast húsnæðiskerfinu í heild en minnti á að svipuð vandamál hefðu verið til staðar fyrir tveimur áratugum, þegar lóðaskortur væri síður talinn aðalvandinn.

Hann taldi kostnað við fjármögnun skipta þar miklu máli, bæði fyrir einstaklinga og verktaka. Dýrt væri að taka lán til uppbyggingar og það hefði áhrif á framboð jafnt sem verð.

Skekkja í tvöföldu kerfi

Í umræðunni kom einnig fram að margir upplifðu ákveðna skekkju í því að laun séu í óverðtryggðum krónum á meðan lán eru verðtryggð. Marinó tók undir að slíkt fyrirkomulag skapaði ójafnvægi og bætti við að sums staðar væru fyrirtæki jafnvel að gera upp í öðrum gjaldmiðlum, svo sem evrum.

Hann sagðist jafnframt ósammála þeirri hugsun að verðmæti fjármagns ætti að ráðast af þróun neysluvísitölu. Að hans mati ætti verð fjármagns fremur að ráðast af þáttum á borð við ávöxtunarkröfu, áhættu og þróun á fjármálamörkuðum, fremur en breytingum á verði neysluvara.

Breið samsetning starfshópsins

Í starfshópnum sitja fulltrúar frá meðal annars ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands.

Marinó sagði mikilvægt að ólíkar skoðanir fengju að takast á innan hópsins. Hann kvaðst vona að þar yrði ágreiningur á fyrri stigum vinnunnar svo mögulegt yrði að vinna úr honum og nálgast sameiginlega niðurstöðu.

Hann lagði þó áherslu á að ekkert væri gefið um niðurstöðuna og að ekki væri hægt að lofa því að starf hópsins myndi leiða til þess að verðtrygging yrði afnumin.

„Ef þetta væri svona einfalt, þá væri þetta löngu búið,“ sagði Marinó.

Á að skila í mars

Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að hópurinn skilaði niðurstöðu í nóvember en Marinó taldi þann tímafrest of skamman miðað við umfang verkefnisins. Nú er stefnt að því að niðurstöður liggi fyrir í mars á næsta ári.

Aðspurður hvers vegna Íslendingar ættu enn að búa við verðtryggingu, þegar önnur nágrannalönd geri það ekki, sagði Marinó þá spurningu einmitt vera meðal þess sem hópurinn þyrfti að glíma við á komandi mánuðum.

Fleiri greinar