Í yfir 40 ár hefur Helgi Björns sungið með þjóðinni. Lög hans lifað með okkur, Í gleði og gráti, í söknuði og sælu, í dansi og á dimmum dögum. Nú stíga Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á stokk í Eldborg, ásamt sérstökum gestum, með tónleika sem fanga þennan sönglagaarf.
Að hætti Reiðmanna, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku - þar sem salurinn syngur með. Þetta verða meira en bara tónleikar.
Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til. Tryggðu þér miða á tix.is, þar sem Eldborg fyllist hratt þegar vindar rísa.
Þessi grein er unnin í samstarfi við Marga steina ehf.









