Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Ella Langley

Choosin' Texas

Næst

Stefán Hilmarsson

Þrátt fyrir allt

Þú gætir unnið miða í leik­hús

Bylgjan skrifar
Þú gætir unnið miða í leik­hús
Bylgjan mælir með Borgarleikhúsinu í vetur.

Komdu og upplifðu stórkostlegan söng og dans í Moulin Rouge, jólastemningu í Þegar Trölli stal jólunum, ævintýralega leikhústöfra í Galdrakarlinum í Oz, íslenska eighties stemningu í Svikasögum eða láttu koma þér á óvart á einni af fjölmörgum öðrum sýningum leikhússins. 

Skráðu þig til leiks hér fyrir neðan og þú gætir unnið fjóra miða á Galdrakarlinn í Oz sem sýnd er á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Galdrakarlinn í Oz

Galdrakarlinn í Oz er dásamlegt fjölskylduævintýri á Stóra sviði Borgarleikhússins. Í Galdrakarlinum í Oz lendir Dórótea og hundurinn Tótó óvæntan í ævintýralandinu Oz þar sem fuglahræður tala, apar fljúga og galdranornir ráða ríkjum. Til að komast aftur heim þarf Dórótea að fylgja gula veginum sem liggur til galdrakarlsins fræga í Oz en hann er sá eini sem getur hjálpað henni.

Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur gesta og gagnrýnenda og er yndisleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Moulin Rouge! Söngleikurinn

Moulin Rouge! Söngleikurinn hefur slegið í gegn meðal leikhúsgesta Borgarleikhússins en yfir 50 þúsund manns hafa séð sýninguna frá því hún var frumsýnd síðastliðið haust. Sýningin sem er sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins er stórbrotin upplifun og leikarar jafnt sem dansarar sýningarinnar eru á heimsmælikvarða. Í aðalhlutverkum eru Hildur Vala Baldursdóttir, Mikael Kaaber og Halldór Gylfason.

Svikasögur

Þriðja verk Maríu Reyndal hér í Borgarleikhúsinu, fyrri verkin Er ég mamma mín? og Með Guð í vasanum voru mjög vinsæl og eiga þessi verk öll sameiginlegt að vera fyndin, mannleg og hjartnæm og fjalla á einhvern hátt um fjölskyldutengsl.

Ótrúlega spennandi leikhópur - Berglind Alda Ástþórsdóttir og hin þrettán ára Rebecca Lív Biraghi deila aðalhlutverkinu. Í öðrum hlutverkum eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vilhelm Neto, Hákon Jóhannesson, Mikael Kaaber, Birna Pétursdóttir og Viktoría Dalitso (líka þrettán ára).

Djöflar

Öskugrár hjónaleikur. Hér leika Vala Kristín Eiríksdóttir og Hilmir Snær Guðnason hjón. Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson leika nágranna þeirra sem eyða með þeim spennuþrunginni kvöldstund með svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Leikstjóri Stefán Jónsson.

Pétur og kötturinn Brandur

Sýning byggð á dásamlegu barnabókunum um Pétur og köttinn Brand eftir Sven Nordqvist. Í hlutverki Péturs verður Valur Freyr Einarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir verður Brandur. Leikstjóri er Sara Martí Guðmundsdóttir

Þessi grein er unnin í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Fleiri greinar