Jülevenner hefur verið fastur liður í jólastemmingu hjá landanum síðustu 10 árin. Fólk sem sækir sýninguna er á sama máli að þetta sé skemmtilegasta og ruglaðasta jólasýning landsins.
Í fyrra mættu rúmlega 6000 manns, dönsuðu og öskursungu með hverju einasta lagi.
Þetta eru ekki hefðbundnir jólatónleikar. Þeir blanda saman músík, gríni og almennu kjaftæði.
Tónleikarnir eru haldnir í ÍR-heimilinu í Breiðholti sem breytist í jólaparadís ár hvert þegar Emmsjé Gauti stígur á stokk ásamt mörgu af okkar fremsta tónlistarfólki.
Gestir Jülevenner í ár eru Úlfur Úlfur, Daníel Ágúst, Saint Pete ásamt fjölda leynigesta.
Ekki missa af LANG skemmtilegustu jólasýningu landsins 18. og 19. desember.
Miðasala er í fullum gangi á tix.is
Fylgstu með á Bylgjunni í vikunni og þú gætir unnið miða á þessa einstöku jólasýningu Emmsjé Gauta - Jülevenner
Þessi grein er unnin í samstarfi við Jülevenner.









