„Það er mikið notað orðið svik um framferði Hildar,“ sagði Jón Steinar í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Jón Steinar hafði áður skrifað harðorðan pistil á Facebook þar sem hann lýsti vonbrigðum sínum með framvindu meirihlutaviðræðna í borginni. Hann sagði í viðtalinu að úrslit kosninganna hefðu að hans mati verið skýr.
„Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn fengu meirihluta í kosningunni. Þeir fengu tólf fulltrúa af 23 og allir venjulegir menn hefðu haldið að þarna hefðu komið fram úrslit í þessum kosningum,“ sagði hann.
„Pólitísk klækindi“
Jón Steinar sagðist hafa talið eðlilegast að Sjálfstæðisflokkurinn myndaði meirihluta með Miðflokknum á örfáum dögum. Þess í stað hafi verið farið í viðræður við Viðreisn og Framsókn.
„Þá er byrjað með einhver pólitísk klækindi,“ sagði hann.
Hann sagði að margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins hefðu litið svo á að þeir væru að fella sitjandi meirihluta í borginni.
„Allir þessir kjósendur töldu sig vera að fella meirihlutann sem sat í Reykjavík. Þá endurvekur hún hann, að vísu með aðeins annarri samsetningu.“
Segir fólk ganga úr flokknum
Jón Steinar sagðist ekki hafa nákvæmar tölur um úrsagnir úr Sjálfstæðisflokknum en kvaðst hafa séð fjölda ummæla á netinu frá fólki sem segðist hafa sagt sig úr flokknum eða hyggjast gera það.
„Ég veit að það eru fjölmargir sjálfstæðismenn núna í dag búnir að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum,“ sagði hann.
Hann sagði flokkinn hafa náð góðum árangri í kosningunum en taldi hættu á að forysta hans væri að kasta því frá sér.
„Flokkurinn fékk meira fylgi núna heldur en nokkur dæmi eru um í langan tíma og mér sýnist að hún ætli bara að klúðra því.“
Hefur sjálfur sagt sig úr flokknum
Jón Steinar sagðist sjálfur hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum en þó lengi stutt hann.
„Ég hef verið fylgjandi honum og stutt hann. Ég hef ekki séð neitt betra,“ sagði hann.
Hann bætti við að Sjálfstæðisflokkurinn hefði að hans mati staðið sig illa í ýmsum málum að undanförnu.
Varar við ESB-aðild
Í viðtalinu vék Jón Steinar einnig að samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í borginni og sagði mikinn málefnalegan mun vera á flokkunum þegar kæmi að Evrópusambandinu.
„Það versta sem fyrir Ísland getur komið er að framselja fullveldi þjóðarinnar til Evrópusambandsins,“ sagði Jón Steinar.
Hann sagðist ekki trúa því að Íslendingar myndu samþykkja slíka stefnu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Það var barist fyrir fullveldi á Íslandi sem fékkst 1. desember 1918 og ég segi bara: Við eigum að halda því.“









