Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Djo

End Of Beginning

Næst

Djo

End Of Beginning

Læknaðist af fjórða stigs krabba­meini og segir bann við lyfjunum á Ís­landi ó­skiljan­legt

Reykjavík síðdegis skrifar
Læknaðist af fjórða stigs krabba­meini og segir bann við lyfjunum á Ís­landi ó­skiljan­legt
Jón Ármann Steinsson bókaútgefandi segist hafa náð bata af fjórða stigs blöðruhálskirtilskrabbameini eftir að hafa farið eigin leiðir í meðferðinni og notað meðal annars lyfin Ivermectin og Mebendazol, sem hann segir erfitt að nálgast á Íslandi. Hann gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld harðlega og telur að almenningur eigi að hafa greiðari aðgang að slíkum lyfjum.

Jón Ármann ræddi reynslu sína í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann segir að krabbameinið hafi verið komið á fjórða stig þegar það greindist og að meinið hefði dreift sér í hrygginn.

„Læknirinn sagði við mig: „Jón, ef ég hefði vitað að þetta hefði hoppað yfir í hrygginn, að þetta væri orðið fjórða stigs, þá hefði ég ekki skorið þig. Vegna þess að það er tilgangslaust,“ sagði Jón Ármann.

Hann segir að sér hafi verið boðin mjög dýr krabbameinslyf hér á landi en að hann hafi ákveðið að fara aðra leið. Fjölskylda hans í Bandaríkjunum hafi hjálpað honum að nálgast lyf sem hann segir hafa verið lykilinn að bata sínum.

Segir lyfin hafa breytt öllu

Jón Ármann segir að hann hafi tekið Ivermectin og Mebendazol ásamt fleiri efnum og að ástand hans hafi breyst hratt.

„Ég var orðinn svo slappur og grár og gugginn að ég leit út eins og lifandi lík. Eftir svona tvo mánuði fór fólk að segja: „Heyrðu, þú ert bara kominn með lit í andlitið,“ sagði hann.

Samkvæmt Jóni Ármanni hafa síðari rannsóknir ekki sýnt merki um krabbamein.

„Enginn krabbi er fundinn,“ sagði hann þegar hann var spurður út í niðurstöður rannsókna eftir meðferðina.

Hann segir þó að PSA-gildi hafi hækkað aftur þegar hann varð tímabundið lyfjalaus í nokkra mánuði.

Umdeild lyf og skiptar skoðanir

Ivermectin vakti mikla athygli á heimsfaraldurstíma Covid-19 og hefur verið umdeilt, bæði hér á landi og erlendis. Jón Ármann telur að lyfið hafi verið vanmetið og segir að notkun þess sé útbreidd í sumum löndum.

„Þetta lyf virkar þannig að það drepur svo mikið af hlutum sem eru að gera menn veika,“ sagði hann og nefndi meðal annars Indland í því samhengi.

Hann fullyrðir jafnframt að lyfið hafi fjölþætta virkni gegn krabbameinsfrumum, meðal annars með því að hindra skiptingu þeirra og útbreiðslu. Jón Ármann tók þó sérstaklega fram í viðtalinu að hann væri ekki læknir heldur væri hann að lýsa eigin reynslu og því sem hann hefði lesið sér til um.

Segir íslenska lækna bundna af reglum

Í viðtalinu sagðist Jón Ármann telja að íslenskir læknar væru takmarkaðir af því hvaða lyfjum þeir gætu ávísað utan hefðbundinna meðferðarleiða.

Hann sagði krabbameinslækni sinn hafa kynnt sér lyfin eftir að hann greindi frá notkun sinni á þeim. Jón Ármann hélt því fram að læknar gætu átt á hættu að fara út fyrir starfsramma sinn ef þeir ávísa slíkum lyfjum við krabbameini.

Varaði við svartamarkaði með lyf

Jón Ármann sagði jafnframt að óheilbrigt væri að fólk neyddist til að nálgast lyfin utan hefðbundins lyfjamarkaðar.

„Það er óheilbrigt að þurfa að vera að standa í svartamarkaðsbraski með lyf sem hefur engar aukaverkanir og bara hjálpar fólki,“ sagði hann.

Hann sagðist vilja fá svör frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum um hvers vegna lyfin væru svo dýr eða erfið í aðgengi hér á landi miðað við sums staðar erlendis.

Mikilvægt að byggja meðferð á ráðleggingum lækna

Ekki liggur fyrir vísindaleg samstaða um að Ivermectin eða önnur sambærileg ormalyf lækni krabbamein og slík notkun er almennt ekki hluti af viðurkenndum krabbameinsmeðferðum hér á landi. Heilbrigðisyfirvöld víða um heim hafa áður varað við því að fólk noti lyf utan samþykktra ábendinga án samráðs við lækna.

Jón Ármann segir þó eigin reynslu hafa sannfært sig um gagnsemi meðferðarinnar.

„Ég er bara sprækur eins og lækur og mér líður eins og ég sé fimmtugur,“ sagði hann.

Fleiri greinar