Petro hefur aðeins verið á Íslandi í átta mánuði en sagðist, í viðtali við Bítið í morgun, strax hafa fundið hér hlýju og mannúð sem hann hafði saknað lengi. Hann er frá Donetsk í Úkraínu, borg sem nú er hersetin, og sagði að þar hefði hann misst heimili sitt og allt sem hann átti.
Sýningin á að vekja tilfinningar
Í spjallinu lagði Petro áherslu á að sýningin væri ekki bara röð af brögðum heldur tilraun til að skapa stemningu og tilfinningar. Hann sagðist vilja færa inn á sviðið eitthvað úr eigin sögu og eigin reynslu, frekar en að setja upp hefðbundna „barnapartísýningu“.
Einar Már sagði að hann hefði fyrst rekist á Petro á markaði niðri í bæ, þar sem hann hefði byrjað að sýna honum spilagaldra. Eftir það hefði komið í ljós að Petro væri með mikla reynslu, meðal annars úr verkefnum tengdum America’s Got Talent, þar sem hann hafði unnið að ýmiss konar sjónhverfingum og leikmunum.
Rubikkubbur í krukku vakti undrun í beinni
Í þættinum sýndi Petro meðal annars sjónhverfingu með Rubikkubb sem skildi þáttastjórnendur eftir gapandi. Kubbur sem þau höfðu ruglað í hringi reyndist á augabragði orðinn nákvæmlega eins og annar kubbur sem hafði verið lokaður inni í glerkrukku allan tímann. Sá kubbur endaði svo sem gjöf til þáttarins.
Þetta er þó aðeins brot af því sem verður í boði í Hljómahöllinni. Að sögn þeirra verður The Illusionist fjölskyldusýning með blöndu af stórum sjónhverfingum, alvöru töfrabrögðum og atriðum þar sem myndavél fylgir höndum og hugarfimi listamannsins í smáatriðum.
Vonast til að sýningin verði fyrsta skrefið
Sýningarnar í Hljómahöllinni verða þær fyrstu hér á landi, en Einar Már sagði að vonir stæðu til þess að þetta yrði aðeins byrjunin. Stefnt væri að fleiri sýningum síðar, á stærra sviði og með enn stærri sjónhverfingum. Miðasala er á tix.is.









