Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
12:15 - 13:00

Núna

Ella Langley & Morgan Wallen

I Can´t Love You Anymore

Næst

Ella Langley & Morgan Wallen

I Can´t Love You Anymore

Missti heimili sitt í stríðinu í Úkraínu og stígur nú á svið í Hljómahöllinni

Bítið skrifar
Missti heimili sitt í stríðinu í Úkraínu og stígur nú á svið í Hljómahöllinni
Úkraínski sjónhverfingamaðurinn Petro Gurido heldur sýninguna The Illusionist í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 21. og 22. júní. Með honum í verkefninu er Einar Már hjá Taste of Iceland, sem kynntist honum á listamarkaði á Lækjartorgi og sá fljótt að þar færi listamaður með óvenjulega hæfileika.

Petro hefur aðeins verið á Íslandi í átta mánuði en sagðist, í viðtali við Bítið í morgun, strax hafa fundið hér hlýju og mannúð sem hann hafði saknað lengi. Hann er frá Donetsk í Úkraínu, borg sem nú er hersetin, og sagði að þar hefði hann misst heimili sitt og allt sem hann átti.

Sýningin á að vekja tilfinningar

Í spjallinu lagði Petro áherslu á að sýningin væri ekki bara röð af brögðum heldur tilraun til að skapa stemningu og tilfinningar. Hann sagðist vilja færa inn á sviðið eitthvað úr eigin sögu og eigin reynslu, frekar en að setja upp hefðbundna „barnapartísýningu“.

Einar Már sagði að hann hefði fyrst rekist á Petro á markaði niðri í bæ, þar sem hann hefði byrjað að sýna honum spilagaldra. Eftir það hefði komið í ljós að Petro væri með mikla reynslu, meðal annars úr verkefnum tengdum America’s Got Talent, þar sem hann hafði unnið að ýmiss konar sjónhverfingum og leikmunum.

Rubikkubbur í krukku vakti undrun í beinni

Í þættinum sýndi Petro meðal annars sjónhverfingu með Rubikkubb sem skildi þáttastjórnendur eftir gapandi. Kubbur sem þau höfðu ruglað í hringi reyndist á augabragði orðinn nákvæmlega eins og annar kubbur sem hafði verið lokaður inni í glerkrukku allan tímann. Sá kubbur endaði svo sem gjöf til þáttarins.

Þetta er þó aðeins brot af því sem verður í boði í Hljómahöllinni. Að sögn þeirra verður The Illusionist fjölskyldusýning með blöndu af stórum sjónhverfingum, alvöru töfrabrögðum og atriðum þar sem myndavél fylgir höndum og hugarfimi listamannsins í smáatriðum.

Vonast til að sýningin verði fyrsta skrefið

Sýningarnar í Hljómahöllinni verða þær fyrstu hér á landi, en Einar Már sagði að vonir stæðu til þess að þetta yrði aðeins byrjunin. Stefnt væri að fleiri sýningum síðar, á stærra sviði og með enn stærri sjónhverfingum. Miðasala er á tix.is.

Fleiri greinar