Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Tom Petty

Learning To Fly

Næst

Lionel Richie & Darius Rucker

Stuck On You

Segir evruna geta sparað heimilum hundrað milljarða á ári

Reykjavík síðdegis skrifar
Segir evruna geta sparað heimilum hundrað milljarða á ári
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segir upptöku evru geta gjörbreytt stöðu heimila og lítilla fyrirtækja á Íslandi. Hann segir vaxtamuninn á Íslandi og evrusvæðinu svo mikinn að um sé að ræða eitt stærsta kjaramál samtímans.

„Vextir á heimili landsins myndu lækka um hundrað milljarða á ári ef við tækjum upp evru,“ sagði Dagur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Dagur segir að venjuleg heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki búi við mun verri kjör en stór útflutningsfyrirtæki, sem mörg geri upp í evrum og taki lán í evrum.

„Núna finnst mér við svolítið vera að skiptast í þá sem hafa aðgang að ódýrara fjármagni og hina sem sitja eftir í krónuhagkerfinu,“ sagði hann.

Segir krónuna skapa áhættuálag

Dagur sagði Íslendinga hafa búið við hátt vaxta- og verðbólguumhverfi í áratugi. Hann sagði að þótt stundum hefði verið talað um lágvaxtaumhverfi hefðu vextir og verðbólga aftur og aftur rokið upp.

„Við höfum verið eins og hamstrar á hjóli í þessu hávaxtaumhverfi með sveiflum,“ sagði Dagur.

Hann sagði reynsluna af krónunni móta verðbólguvæntingar og skapa áhættuálag á íslensk lán.

„Við þekkjum þetta öll. Sveiflur og óvænt áföll virðast alltaf einhvern veginn sveifla þessum gjaldmiðli og verðbólgunni,“ sagði hann.

„Holur hljómur“ í gagnrýni stórfyrirtækja

Dagur gagnrýndi stór útflutningsfyrirtæki sem hann segir njóta aðgangs að evrulánum en leggjast gegn því að almenningur fái sambærilegt vaxtaumhverfi.

„Mér finnst dálítið holur hljómur þegar sterkir hagsmunaaðilar, sem eiga orðið hálft Ísland, eru að beita sér gegn því að venjulegt fólk með húsnæðislán og lítil og meðalstór fyrirtæki geti fengið stöðugleika í sitt líf,“ sagði hann.

Hann sagði byggingaverktaka hafa þurft að taka framkvæmdalán á allt að 16 prósenta vöxtum, á meðan stór fyrirtæki gætu fjármagnað sig í evrum á mun hagstæðari kjörum.

Segir húsnæðisvandann ekki skýra vaxtamuninn

Dagur var spurður hvort þéttingarstefna og lóðaskortur í Reykjavík hefðu haft áhrif á verðbólguvæntingar. Hann vísaði því að hluta frá sem „Mogga-spuna“.

Hann sagði húsnæðisverð hafa hækkað meira á svæðum í klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík en í borginni sjálfri.

„Íbúðirnar eru dýrastar hér vegna þess að þær eru eftirsóttastar hér, en verðhækkanirnar hafa verið meiri annars staðar á undanförnum árum,“ sagði Dagur.

Hann sagði þó mikilvægt að byggja nóg og að dýr fjármögnun verktaka væri hluti af vandanum.

Vill Ísland inn í evruna

Dagur sagði skýrt að hann vildi að Ísland tæki upp evru, þó að það væri hvorki einföld né töfralausn.

„Það er ekki þar með sagt að allt verði fullkomið ef við tækjum upp evru,“ sagði hann.

Hann sagði upptöku evru kalla á aga, skipulag og minni sveigjanleika, en að ávinningurinn fyrir heimili og fyrirtæki gæti verið gríðarlegur.

„Ég held að evran sé mjög mikilvægur og góður kostur og myndi gjörbreyta umhverfinu,“ sagði Dagur.

Telur þrjú til fimm ár raunhæfan tíma

Aðspurður hvenær Ísland gæti tekið upp evru ef þjóðin gengi í Evrópusambandið sagðist Dagur ekki vilja fullyrða um það.

„Núna er þetta kannski á bilinu þrjú til fimm ár,“ sagði Dagur.

Fleiri greinar