Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Toploader

Dancing In The Moonlight

Næst

Toploader

Dancing In The Moonlight

Óli Björn gagn­rýnir Björn Inga harð­lega: „Hefði betur sagt minna og sýnt meira lítil­læti“

Reykjavík síðdegis skrifar
Óli Björn gagn­rýnir Björn Inga harð­lega: „Hefði betur sagt minna og sýnt meira lítil­læti“
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir skynsamlegt að reyna að mynda breiðan og sterkan meirihluta í Reykjavík með þátttöku fjögurra flokka. Hann gagnrýnir jafnframt ummæli Björns Inga Hrafnssonar um að Sjálfstæðismenn séu „hræddir við vókið“ og segir þau hafa torveldað mögulegar meirihlutaviðræður.

Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni ræddi Óli Björn stöðuna í meirihlutamyndun í borginni eftir að Hildur Björnsdóttir fundaði með oddvitum Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fyrr í dag.

Sagði hann eðlilegt að Hildur kannaði hvort grundvöllur væri fyrir breiðum meirihluta fjögurra flokka.

„Það er eðlilegt og í rauninni nauðsynlegt fyrir Hildi, sem er hinn sterki leiðtogi í Reykjavík, að gera tilraun til þess að kanna hvort grundvöllur sé fyrir mjög sterkum og breiðum meirihluta í borgarstjórn,“ sagði Óli Björn.

Að hans mati kallar staða Reykjavíkurborgar á víðtæka pólitíska samstöðu vegna erfiðra verkefna fram undan, meðal annars í fjármálum, skipulagsmálum, leikskólamálum og samgöngum.

Segir ummæli Björns Inga hafa torveldað stöðuna

Í þættinum var rifjað upp viðtal við Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þar sem hann sagði suma Sjálfstæðismenn „hrædda við vókið“ og of hikandi við að taka „hægri beygju“.

Þau orð féllu ekki í góðan jarðveg hjá Óla Birni.

„Björn Ingi hefði betur átt að segja minna og sýna meira lítillæti, en ekki þann hroka sem hann gerir í garð Sjálfstæðismanna,“ sagði hann.

Hann sagði jafnframt að ummælin hefðu ekki auðveldað mögulegt samstarf flokkanna.

„Hann gerði verkefnið ekki léttara með þessu viðtali,“ sagði Óli Björn og bætti við að verið væri að byggja upp tortryggni í garð Sjálfstæðisflokksins.

Þá hafnaði hann alfarið þeirri hugmynd að Sjálfstæðismenn væru hræddir við svokallað „vók“.

„Nei, hvaða þvæla er þetta?“ sagði hann þegar hann var spurður út í ummælin.

Telur Reykvíkinga kalla eftir breytingum

Óli Björn sagði fyrstu breytingarnar sem Reykvíkingar myndu finna fyrir snúa að nýjum vinnubrögðum og nýrri „áferð“ í borgarstjórninni.

„Þú munt verða var við það að til leiks er kominn borgarstjóri sem er öflugur,“ sagði hann og vísaði þar til Hildar Björnsdóttur.

Hann sagði verkefnin fram undan meðal annars felast í því að bæta rekstur borgarinnar, efla leik- og grunnskóla og taka fast á samgöngumálum.

Þá útilokaði hann ekki að hagræðing í rekstri gæti haft áhrif á starfsmannahald hjá borginni.

„Þegar menn straumlínulaga rekstur jafnstórs fyrirtækis og Reykjavíkurborg er, þá hlýtur það að fela í sér að einhver fækkun verði á fólki,“ sagði Óli Björn, en tók þó fram að á móti gæti þurft að fjölga starfsfólki á öðrum sviðum, til dæmis í leik- og grunnskólum.

Viðurkennir að brotthvarf flokksfélaga hafi farið illa í sig

Í viðtalinu var einnig rætt um þá stöðu að þrír fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja nú hjá Miðflokknum og að mögulegt sé að flokkarnir myndi saman meirihluta.

Óli Björn viðurkenndi að brotthvarf flokksfélaga hefði farið illa í sig.

„Auðvitað fór það illa í mig að sjá góða vini mína og félaga til margra áratuga yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði hann.

Hann sagði þó að menn yrðu að komast yfir slíkt og horfa fram á veginn.

Vonast eftir fjögurra flokka meirihluta

Aðspurður hvort hann teldi líklegt að fjögurra flokka meirihluti yrði niðurstaðan sagðist Óli Björn vona það, þótt hann viðurkenndi að líkurnar væru ekki endilega með þeirri niðurstöðu.

„Ég held að það verði farsælast fyrir Reykvíkinga,“ sagði hann.

Hann bætti þó við að fleiri möguleikar væru áfram inni í myndinni og að ekkert hefði verið ákveðið.

Fleiri greinar