Björn Ingi segir úrslit borgarstjórnarkosninganna sýna skýran vilja kjósenda til hægri breytinga í Reykjavík.
Miðflokkurinn vann stórsigur í kosningunum og fór úr engum fulltrúa í þrjá. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu fulltrúa og stendur nú frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort mynda eigi meirihluta með Miðflokknum eða leita samstarfs við Framsókn og Viðreisn.
„Það blasi við að það var borgaraleg bylgja,“ sagði Björn Ingi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Segir kjósendur hafa viljað breytingar
Björn Ingi sagði bæði Miðflokk og Sjálfstæðisflokk hafa talað skýrt fyrir breytingum í kosningabaráttunni, meðal annars í samgöngumálum, Borgarlínu, rekstri borgarinnar og þéttingu byggðar.
„Þá finnst mér þetta nú satt að segja ekkert mjög flókið reikningsdæmi,“ sagði hann.
Hann sagði að ef vinstri flokkarnir hefðu náð meirihluta, jafnvel með einum fulltrúa, væru þeir að hans mati þegar búnir að mynda meirihluta.
„Hræddir við að taka hægri beygju“
Björn Ingi sagðist telja að einhverjir innan Sjálfstæðisflokksins væru enn hikandi við að mynda skýran hægri meirihluta.
„Kannski sýnir þetta að innan Sjálfstæðisflokksins eru sumir enn dálítið hræddir við „vókið,“ hræddir við að vera umdeildir, hræddir við að taka til dæmis hægri beygju,“ sagði hann.
Hann sagði kjósendur Sjálfstæðisflokksins hins vegar hafa kosið slíka stefnu.
Segir Miðflokkinn ekki tala niður mannréttindi
Í viðtalinu var Björn Ingi spurður út í ummæli Hildar Björnsdóttur um að hún vildi ekki gera hátt undir höfði flokks sem talaði niður mannréttindi og réttindi minnihlutahópa.
Björn Ingi sagði slíkar ásakanir fráleitar.
„Það er enginn í Miðflokknum sem gerir það,“ sagði hann og bætti við að flokkurinn stæði með mannréttindum minnihlutahópa.
Hann sagði mikilvægt að hægt væri að ræða viðkvæm mál án þess að fólk væri sakað um hatur.
Telur samstarf við Viðreisn og Framsókn brothætt
Björn Ingi sagði að ef Sjálfstæðisflokkurinn myndaði meirihluta með Viðreisn og Framsókn gæti það skapað sterka stöðu fyrir Miðflokkinn í stjórnarandstöðu frá hægri.
Hann sagði slíkan meirihluta þó ekki vera þann meirihluta sem Hildur hefði talað fyrir í kosningabaráttunni.
Björn Ingi sagði Miðflokkinn ekki eiga að fara í meirihluta nema hann gæti komið sínum málum fram.
„Það er betra að vera í minnihluta heldur en að fara í meirihluta sem á að vera útvatnaður eitthvað inn á miðjuna og gerir ekki neitt,“ sagði hann.
Hann nefndi Einar Þorsteinsson sem dæmi og sagði hann hafa lofað breytingum fyrir fjórum árum en síðan gengið til liðs við fallinn meirihluta.
Spáir meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks
Aðspurður um framhaldið sagðist Björn Ingi telja líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn myndi á endanum meirihluta.
„Þegar Sjálfstæðismennirnir vinir mínir eru búnir að ná jarðsambandi og átta sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu og Miðflokkurinn þrjá, þá munu þeir klára þetta samstarf,“ sagði Björn Ingi.
Hann bætti við að ef Miðflokkurinn hefði ekki náð þriðja manninum inn væri að öllum líkindum þegar búið að mynda vinstri meirihluta.









