Í fyrra var mótið haldið í fyrsta sinn og þá tóku þrjátíu og tveir þátt. Að sögn Tomma var strax ljóst að áhuginn væri meiri en margir hefðu gert ráð fyrir og nú hafi mótið stækkað verulega á milli ára.
Allt frá átján ára upp í sextugt
Tommi sagði keppendahópinn vera afar fjölbreyttan. Sá yngsti væri um átján ára og sá elsti nálægt sextugu, en annars væri þetta bara fólk á öllum aldri sem hefði gaman af spilinu.
Að hans mati liggur einmitt styrkur mótsins í því að nánast allir kunni Ólsen Ólsen frá unga aldri. Spilið sé einfalt að læra, en samt nógu óútreiknanlegt og skemmtilegt til að kveikja alvöru keppnisskap.
Ríkjandi Íslandsmeistari mætir aftur
Sigurvegarinn frá því í fyrra, Gísli Örn Gíslason frá Keflavík, verður aftur meðal keppenda og ætlar sér að verja titilinn. Tommi rifjaði upp að í fyrra hefði einn keppandi verið nær ósnertanlegur nánast allt mótið, en að það hefði samt allt getað snúist á einu úrslitaborði.
Það er líka hluti af sjarmanum við Ólsen Ólsen, að sögn Tomma. Einstök spil geta farið hratt fram, en önnur dregist verulega á langinn. Það geti því allt gerst.
Útsláttarfyrirkomulag og hert öryggi
Mótið er spilað með útsláttarfyrirkomulagi. Fyrstur til að vinna þrjú spil kemst áfram í næstu umferð, en í úrslitunum þarf sigurvegari að vinna fjögur spil.
Tommi verður sjálfur yfirdómari mótsins og sagði að öryggisgæslan yrði „hert“. Hann rifjaði upp að í fyrra hefði hitnað verulega í kolunum við sum borð og að stundum hefði þurft að skera úr um ágreining, meðal annars um stöðu í einstökum spilum.
Ef keppandi gleymir að kalla „Ólsen“ þegar aðeins eitt spil er eftir á hendi, er refsingin þrjú spil úr bunkanum.
Stefnt á enn stærra mót á næsta ári
Tommi sagðist sjá fyrir sér að mótið stækki áfram ár frá ári. Markmiðið sé að tvöfalda það aftur á næsta ári og halda áfram uppbyggingunni.
Hann sagði stemninguna í fyrra hafa komið sér á óvart. Þegar leið á mótið myndaðist þéttur hópur í kringum úrslitaborðið, þar sem bæði keppendur sem voru dottnir út og aðrir stuðningsmenn fylgdust með, sungu og trölluðu.
Frítt fyrir gesti
Mótið hefst klukkan þrjú á laugardag á Púlsinum í Austurbæjarbíói. Frítt er inn fyrir áhorfendur og hvatti Tommi fólk til að mæta og fylgjast með.
Að hans sögn verður einnig reynt að streyma undanúrslitum og úrslitum, líklega á miðlum X977.
Og fyrir þá sem velta taktíkinni fyrir sér sagði hann að Ólsen Ólsen væri líklega um 65 prósent heppni og 35 prósent taktík. En það skipti samt máli að kunna að lesa stöðuna, halda rétt á spilunum og vita hvenær væri best að geyma áttuna.










