Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni ræddi Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnsérfræðingur, um áhrif svokallaðs orkublunds. Hún segir að bæði lengd og tímasetning skipti höfuðmáli.
„Besti tíminn til að leggja sig er yfirleitt milli klukkan tólf og tvö og blundurinn ætti ekki að vera lengri en þrjátíu mínútur,“ segir Erla. Hún bætir við að rannsóknir sýni að tíu til tuttugu mínútna blundur geti bætt einbeitingu, minni og almenna líðan, auk þess að auka orku til að klára daginn.
Ekki lúra of lengi eða of seint
Erla varar við því að fara yfir þessi tímamörk eða leggja sig of seint dags.
„Um leið og maður fer að sofa of lengi eða of seint, þá fer það að bitna á næstu nótt,“ segir hún. Hún bendir á að jafnvel örstuttur blundur seinnipart dags, til dæmis yfir kvöldfréttum, geti haft neikvæð áhrif á nætursvefn.
Þetta tengist líkamsklukkunni og dægursveiflu líkamans, þar sem tímasetning svefns hefur afgerandi áhrif á gæði nætursvefns.
Hægt að „þjálfa“ stuttan blund
Að sögn Erlu er hægt að venja sig á stuttan og árangursríkan blund. Hún nefnir meðal annars svokallaðan „lyklablund“, þar sem einstaklingur heldur á lyklakippu og vaknar um leið og hún fellur úr hendi.
„Jafnvel þó að þú náir ekki að sofna getur djúpt slökunarástand verið nóg til að ná endurheimt,“ segir hún og útskýrir að slíkt ástand samsvari fyrsta svefnstigi.
Ekki fyrir alla – og varist vítahring
Þrátt fyrir kosti orkublunds segir Erla mikilvægt að huga að heildarsvefnvenjum.
„Ef fólk er að glíma við svefnleysi getur það skapað vítahring að sofa yfir daginn,“ segir hún og leggur áherslu á að fyrst þurfi að ná góðum nætursvefni áður en daglúrar eru teknir upp reglulega.
Erla telur að vinnustaðir ættu að huga betur að möguleikum starfsfólks til stuttrar hvíldar yfir daginn.
„Við erum að sjá að hugræn færni og afköst geta aukist, þannig að fyrirtæki gætu fengið meira út úr starfsfólki með því að bjóða upp á slíka aðstöðu,“ segir hún.
Hún bendir jafnframt á að víða erlendis – og jafnvel á Íslandi – hafi fyrirtæki þegar komið sér upp slökunarrýmum fyrir starfsfólk.
Aukin meðvitund um mikilvægi svefns
Að sögn Erlu er orkublundur sífellt meira til umræðu hér á landi samhliða aukinni vitund um mikilvægi svefns.
„Ég held að sífellt fleiri reyni að nýta sér þetta þegar aðstæður leyfa, sérstaklega á krefjandi dögum,“ segir hún.
Erla var stödd á norrænni svefnráðstefnu í Kaupmannahöfn þegar viðtalið fór fram, þar sem sérfræðingar deila nýjustu þekkingu á sviði svefnrannsókna.









