Bylgjutónlist
Bylgjutónlist
00:00 - 06:50

Núna

Belinda Carlisle

Leave A Light On

Næst

Robbie Williams

All My Life

Segir stjórn­endur spítalans á hálum ís að reka Ragnar sem sinnir trúnaðar­störfum

Reykjavík síðdegis skrifar
Segir stjórn­endur spítalans á hálum ís að reka Ragnar sem sinnir trúnaðar­störfum
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, sagðist í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni vera verulega undrandi á uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis á Landspítalanum. Hún sagði ákvörðunina óskiljanlega, ekki síst í ljósi þess að sjálfur spítalinn hafi talað opinskátt um læknaskort og að Ragnar Freyr sé að hennar mati verðmætur starfskraftur.

Ragnar greindi sjálfur frá því á Facebook í gær að honum hefði verið tilkynnt símleiðis að staða hans hefði verið lögð niður. Landspítalinn hefur sagt uppsögnina tengjast ríkri aðhaldskröfu og því að verið sé að sameina hlutastöður, en jafnframt hefur komið fram að honum standi til boða hærra starfshlutfall.

Steinunn sagði mjög mörgum læknum vera brugðið og að víða í stéttinni væri verið að lýsa stuðningi við Ragnar. Hún sagði hann þekktan af góðu, reynslumikinn og drífandi, og að brotthvarf hans væri að hennar mati mikill missir fyrir Landspítalann. Sambærileg viðbrögð hafa komið fram meðal kollega hans opinberlega í dag.

Segir samhengi uppsagnarinnar óheppilegt

Í viðtalinu var Steinunn spurð hvort líta mætti svo á að verið væri að refsa Ragnari fyrir gagnrýni hans á starfsemi spítalans. Hún sagðist ekki geta fullyrt það, en taldi samhengi málsins mjög óheppilegt. Hún benti á að Ragnar hefði verið opinskár í gagnrýni sinni og að hennar mati málefnalegur, auk þess sem hann gegni trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag og sé formaður Læknafélags Reykjavíkur. Trúnaðarmenn á vinnustöðum njóti sérstakrar verndar einmitt vegna þess að hlutverk þeirra sé að tala opinskátt um brotalamir. Ragnar Freyr situr jafnframt í stjórn Læknafélags Íslands þetta starfsár.

Að hennar mati lítur þetta því óhjákvæmilega þannig út að verið sé að letja umræðu. Hún orðaði það svo að menn væru „á hálum ís“ ef þeir færu að reka fólk sem sinnir trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag.

Furðar sig á að byrja á framlínulækni

Mesta áherslan hjá Steinunni í viðtalinu var þó ekki á meintar hvatir að baki uppsögninni heldur það hvernig staðið væri að niðurskurði. Hún sagði að ef raunveruleg aðhaldskrafa væri á Landspítalann væri sér mjög brugðið yfir því að farið væri „beint á gólfið“, það er að segja í starfsmenn sem sinna beinni þjónustu við sjúklinga.

Hún benti á að hún hefði sjálf starfað á sjúkrahúsum erlendis og þar væri almennt ekki byrjað á því að segja upp framlínufólki. Yfirleitt væri fyrst farið í ráðningabann, síðan í millistjórnendalög og skrifstofustarfsemi, en ekki í lækna og annað starfsfólk sem ynni við beinar sjúklingaþjónustu.

Að hennar mati væri það algjört örþrifaráð að segja upp lækni við þessar aðstæður, sérstaklega þegar við blasi læknaskortur sem stjórnendur spítalans hafi sjálfir talað um.

Telur rökstuðninginn ekki ganga fyllilega upp

Steinunn vék einnig að þeirri skýringu að staða Ragnars hefði verið hlutastarf og að verið væri að sameina störf. Hún sagðist eiga erfitt með að sjá að sú röksemd dygði ein og sér, meðal annars vegna þess að Ragnar væri í launalausu leyfi fram í október og kostaði því ekki spítalann neitt á meðan. Ragnar hefur sjálfur bent á þetta atriði og jafnframt hafnað því að honum hafi verið boðið hærra starfshlutfall áður en uppsögnin kom til.

Steinunn sagði að jafnvel þótt um 33 prósenta starf væri að ræða á mjög þunnt mannaðri deild, þá skipti hver einasti starfskraftur máli. Hún sagðist velta því fyrir sér hvernig kollegum hans liði með að missa þennan mannafla, enda væri álagið á Landspítalanum þegar mjög mikið.

Bendir á ósamræmi við orð ráðherra

Í viðtalinu rifjaði Steinunn upp að bæði fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra hefðu talað um að hlífa heilbrigðiskerfinu við þeirri mönnunarsamdráttarkröfu sem lögð væri á önnur svið hins opinbera. Hún sagði því erfitt að sjá hvernig uppsögn læknis á Landspítalanum samrýmdist þeim skilaboðum.

Hún rifjaði einnig upp að rætt hefði verið um að aðhaldskrafa á Landspítalann næmi um fjórum milljörðum króna og að heilbrigðisráðherra hefði sjálf lýst slíkri kröfu sem óraunhæfri. Í því ljósi spurði Steinunn beinlínis á hvaða vegferð stjórnendur spítalans væru.

Óttast að þetta auki álagið

Steinunn sagði að eitt af því sem gerði málið enn erfiðara væri að yfirvinna lækna væri þegar stór þáttur í rekstrarvanda spítalans. Eftir styttingu vinnuvikunnar hefði lausnin átt að vera fjölgun lækna, ekki fækkun. Ef starfsmönnum á gólfinu væri nú fækkað myndi það að hennar mati aðeins auka álagið á þá sem eftir væru og hækka yfirvinnukostnað enn frekar.

Hún lýsti álaginu á Landspítalanum sem ómanneskjulegu og sagði að ekkert benti til þess að það myndi batna við þessa ákvörðun.

Steinunn sagði að Læknafélag Íslands myndi óska eftir svörum frá stjórnendum Landspítalans vegna málsins og sjá hvað kæmi út úr því. Aðspurð hvort hún teldi uppsögnina persónulega sagði hún það ekki vera fyrir sig að fullyrða, en bætti við að margir úti í bæ væru greinilega að velta því fyrir sér.

Fleiri greinar