Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
12:15 - 13:00

Núna

Keane

Everybody's Changing

Næst

Ravyn Lenae.

Love Me Not

Forsetaherrann ræðir geð­heilsu við tón­listar­fólk

Bítið skrifar
Forsetaherrann ræðir geð­heilsu við tón­listar­fólk
Björn Skúlason forsetaherra og Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, ræddu í Bítinu á Bylgjunni í morgun um nýtt árvekniátak samtakanna og hlaðvarpið Allt í lagi með Birni Skúlasyni. Markmiðið er að efla sýnileika Hugarafls, ýta undir opnari umræðu um geðheilsu og minna fólk á að það sé ekkert að því að leita sér hjálpar þegar illa liggur á því.

Auður sagði að Hugarafl hefði komist að þeirri niðurstöðu að samtökin væru einfaldlega ekki nógu sýnileg. Það skipti miklu máli, ekki síst þar sem starfsemin stæði utan hins hefðbundna geðheilbrigðiskerfis og væri opin fólki alls staðar af landinu.

Opin miðstöð fyrir fólk sem vill ná betri fótfestu

Auður lýsti Hugarafli sem opinni miðstöð fyrir fólk frá 18 ára aldri sem hefur farið í gegnum geðraskanir eða geðrænan vanda og er að leita leiða til að láta sér líða betur.

Starfið byggir meðal annars á hópastarfi, virknimiðstöð og jafningjastuðningi. Hún sagði markmiðið meðal annars að hjálpa fólki að verða virkari í samfélaginu og átta sig betur á því hvað það er sem hindrar það í daglegu lífi.

Björn sagði að þegar hann hefði fyrst komið inn í samtalið við Hugarafl hefði hann í raun lítið vitað um starfsemina. Hann sagðist hafa samþykkt að verða verndari samtakanna en jafnframt bent á að vekja þyrfti meiri athygli á því góða starfi sem þar væri unnið.

Að hans sögn varð það upphafið að vinnu við að byggja upp sterkari ásýnd í kringum samtökin. Hann benti á að fjölmörg jaðarsamtök ynnu ómetanlegt starf á þessu sviði, en mörg þeirra væru líka stöðugt að berjast fyrir rekstrinum og þyrftu stuðning.

Átta hlaðvarpsþættir með tónlistarfólki

Sem hluti af átakinu var ráðist í hlaðvarpið Allt í lagi með Birni Skúlasyni, þar sem Björn ræðir við tónlistarfólk. Hann sagði hugmyndina meðal annars hafa verið þá að sýna fram á að allir gætu gengið í gegnum hæðir og lægðir og að andleg vanlíðan eða áföll væru ekki eitthvað sem aðeins sumir upplifðu.

Tónlistarfólk varð fyrir valinu vegna þess að slíkt efni birtist oft með beinum eða óbeinum hætti í textum og sköpun þess. Að hans sögn er tónlistin oft vettvangur þar sem fólk vinnur úr eigin reynslu, sársauka og erfiðum tilfinningum.

Björn sagði að það hefði verið sérstök upplifun að stýra svona viðtölum án handrits og leyfa þeim einfaldlega að flæða. Hann sagði viðmælendurna hafa verið mjög ólíka, en að sameiginlegi þráðurinn hefði verið sá að flestir þyrftu einhvern tímann að leita sér hjálpar, með einum eða öðrum hætti.

Hann sagðist líka hafa fundið að það skipti máli að hann berskjaldaði sig sjálfur í þáttunum. Það hefði hjálpað til við að brjóta niður ákveðinn múr og opnað fyrir heiðarlegri samtöl.

Björn rifjaði meðal annars upp að hann hefði alist upp við að menn ættu bara að bíta á jaxlinn og halda áfram. Nú viti fólk betur, og það skipti máli að segja upphátt að það sé engin skömm fólgin í því að tala við einhvern eða vinna í sínum málum.

Hluti af stærra átaki

Hlaðvarpið er þó aðeins einn þáttur í stærra átaki. Auður sagði að samhliða því færu af stað auglýsingar með listafólki, greinaskrif og önnur kynning sem ætti að halda umræðunni á lofti og vekja athygli á Hugarafli.

Hún sagði líka að átakið hefði fleiri hliðar. Annars vegar ætti það að normalísera það að leita sér hjálpar, en hins vegar að minna á að Hugarafl þyrfti líka stuðning frá almenningi til að halda úti starfseminni.

Vísuðu til mikils árangurs

Niðurstöður Gallup-könnunar um starfsemi Hugarafls sýna mjög skýran árangur hjá fólki sem leitaði til samtakanna, bæði þegar horft er til líðanar áður en það kom inn í starfið og eftir að það hefði farið í gegnum ákveðið ferli, að sögn Björns.

Ekki voru reifaðar tölur í þættinum, en bæði Björn og Auður lögðu áherslu á að þar sæjust sterk merki um að starfið skilaði raunverulegum breytingum fyrir fólk.

Hlaðvarpið Allt í lagi með Birni Skúlasyni er aðgengilegt á hlaðvarpsveitum og í gegnum Vísi. 

Fleiri greinar