Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Nálgast má alla þættina frítt á öllum helstu hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið.
„Enginn sem ber ábyrgð á þessu?“
Ástandið í heilbrigðiskerfinu var áfram í brennidepli. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, notaði stór orð í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þegar hún lýsti stöðunni á Landspítalanum: „Þetta er neyðarástand, þetta eru hamfarir“.
Steinunn benti á hrópandi ósamræmi í forgangsröðun ríkisins. Á meðan sjúklingar liggja á göngum og í kapellu bráðamóttökunnar, hafa rándýrar stórbyggingar á vegum hins opinbera risið á ógnarhraða. „Smiðja Alþingis, Landsbankahúsið og svo framvegis, stórglæsilegar, rándýrar byggingar sem hafa rokið upp á þessum tíma meðan við höfum verið að bíða eftir þessum spítala,“ sagði Steinunn.
Innviðaskuldin bitnar á fólkinu
Hafdís Hanna Ægisdóttir lýsti vandanum á bráðamóttökunni í viðtali við Bítið á Bylgjunni en faðir hennar hefur dvalið á spítalanum síðan í október í bið eftir hjúkrunarrými. Hafdís lýsti því hvernig færni hans hefur horfið hratt við að bíða í umhverfi sem er engan veginn hannað fyrir langdvöl.
Alma Möller heilbrigðisráðherra viðurkenndi í Sprengisandi að staðan væri afleiðing áratuga vanrækslu. Tölfræðin er sláandi: Á sex ára tímabili fjölgaði hjúkrunarrýmum aðeins um 69 rými.
Reykjavíkurmódelið og Bakkakot
Í borginni kynnti meirihlutinn nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum. Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, kallaði módelið „björgunaraðgerð“ sem miðar að því að bæta starfsaðstæður. Þótt gjöld lækki hjá sumum, þýðir ný tekjutenging umtalsverðar hækkanir hjá öðrum hópum.
Að lokum var rætt við Ólöfu Ástu Farestveit, forstjóra Barna- og fjölskyldustofu, vegna umfjöllunar um vistheimilið Bakkakot. Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, sagði í viðtali við Kastljós í vikunni að hann hefði ekki vitað af ofbeldismálum á Bakkakoti. Ólöf var spurð hvort það gæti staðist og hvort sambærileg mál myndu rata inn á hennar borð miðað við verklag dagsins í dag.









