Helgin með Braga Guðmunds
Helgin með Braga Guðmunds
12:15 - 16:00

Núna

Birgir & Júlí Heiðar

Getum við?

Næst

Bruce Springsteen

Cover Me

Mál málanna í vikunni: Játning Ólympíufara, bráðamót­taka á rauðu og falsaðar raddir

Starri Freyr Jónsson skrifar
Mál málanna í vikunni: Játning Ólympíufara, bráðamót­taka á rauðu og falsaðar raddir
„Hún var gullverðlaunin í lífinu mínu,“ sagði norski skíðakappinn Sturla Holm Lægreid í einlægu og vandræðalegu viðtali sem fór hefur eins og eldur í sinu í vikunni. Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Máli málanna rýnir Auðun Georg Ólafsson í stærstu mál vikunnar sem voru til umræðu á Bylgjunni.

Vikan 9. til 13. febrúar bauð upp á ótrúlega atburðarás. Á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó stal skíðaskotfimisstjarnan Sturla Holm Lægreid senunni þegar hann viðurkenndi framhjáhald í beinni útsendingu hjá norska ríkisútvarpinu, NRK, stuttu eftir að hafa nælt sér í bronsverðlaun. Atvikið hefur vakið heimsathygli.

Hlustaðu á vikuyfirlit Máls málanna í spilaranum hér fyrir neðan. Nálgast má alla þættina frítt á öllum helstu hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið.

Bifröst, Landspítali og Europol

Hér heima var staðan á Bifröst í brennidepli. Njörður Sigurjónsson, prófessor, lýsti í Bítinu því sem hann sagði vera þöggunartilburði og ógnarstjórnunar stjórnenda háskólans.

„Allur sá málatilbúnaður er með þeim hætti að hann gekk algjörlega fram af starfsfólki. Njörður Sigurjónsson,“ segir prófessor við Háskólann á Bifröst.

Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi nemenda, greindi frá því að stjórnendur hefðu hringt í nemendur og beitt þá þrýstingi til að tryggja rektor skólans stuðning. Málinu lauk með því að Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor, baðst lausnar í beinni útsendingu í Kastljósi.

Auðun Georg Ólafsson stýrir hlaðvarpinu Mál málanna í hádeginu alla virka vikunnar.Vísir/Anton Brink.

Athyglin færðist í vikunni yfir á enn eitt neyðarástandið á Bráðamóttöku Landspítalans. Runólfur Pálsson forstjóri greindi frá því við Reykjavík síðdegis að deildin hýsti nú þrefaldan þann fjölda sem hún er hönnuð fyrir, á sama tíma og krafist er 5 milljarða niðurskurðar í rekstri.

„Það eru allt of margir inni í litlu húsnæði fyrst og fremst. það er ekki hægt að skipuleggja þjónustu, það er ekki hægt að einangra einstaklinga sem eru grunaðir að hafa smitandi sjúkdóm, þannig að það er bara örtröð sem skapast í þessu litlu rými,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans.

Hann sagði til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta á álaginu.

Lögreglan fletti ofan af víðtæku fíkniefnaneti í samstarfi við Europol, þar sem ellefu voru handteknir hér á landi vegna innflutnings frá Suður-Ameríku. Rannsókn málsins hefur leitt í ljós hversu einfalt er orðið að stýra alþjóðlegum glæpasamtökum með dulkóðuðum samskiptum yfir landamæri.

Hættulegar götur og raddfalsanir

Öryggi í malbiki og á netinu var einnig áberandi í umræðu vikunnar.

Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur, mældi 30 millimetra djúpar rásir í malbiki Reykjavíkur og sagði ástandið vera orðið stórhættulegt.

„Rásirnar eru þarna en þær eru orðnar allt of djúpar,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur.

Gríðarlegt landrof breytti ásýnd Reynisfjöru í vikunni og spurning hvort ferðamenn finni sér aðra fjöru til að dást að.

Þá var rætt við Theodór Ragnar Gíslason hjá Defend Iceland sem sýndi hvernig gervigreind getur klónað raddir þjóðþekktra einstaklinga á örfáum mínútum.

Viltu ná utan um allt þetta og meira til á innan við 20 mínútum? Hlustaðu á vikuuppgjör Máls málanna þar sem rýnt er í stærstu fréttirnar og samhengið dregið fram.

Þátturinn er frír og aðgengilegur á Tal.is eða í spilaranum hér fyrir ofan.

Fleiri greinar