Hádegisfréttir
Hádegisfréttir
12:00 - 12:15

Núna

The Cardigans

Lovefool

Næst

Fréttastofa Bylgjunnar

Fréttir

Viku­yfir­lit Máls málanna

Starri Freyr Jónsson skrifar
Viku­yfir­lit Máls málanna
Misstir þú af því sem brann heitast á þjóðinni í vikunni? Það hafa ekki allir tíma til að setja sig inn í helstu fréttamálin á hverjum degi.

Nýjasta vikuuppgjör hlaðvarpsins Máls málanna fór í loftið á hádegi í gær, föstudaginn 6. febrúar . Í hádeginu á hverjum virkum degi fer Auðun Georg Ólafsson yfir það sem skiptir landsmenn mestu máli og föstudögum fer hann síðan yfir þær fréttir sem brunnu helst á þjóðinni í vikunni.

Nálgast má alla þættina frítt á öllum helstu hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið.

Áfallið vegna Bakkakots

Mál vikunnar er án efa umfjöllun Kveiks í Ríkissjónvarpinu um raunir níu manna sem greindu frá því að hafa verið beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið á meðan þeir dvöldu ungir á sveitabænum Bakkakot á Suðurlandi. Barnaverndaryfirvöld sendu börn á bæinn í tæpa þrjá áratugi. Krefjast þeir rannsóknar og bóta frá hinu opinbera.

„Maður getur varla tjáð sig öðruvísi en bara að fara að gráta. Hvar var þetta kerfi? Hvar hefur þetta kerfi verið eiginlega?,“ segir Inga Sæland mennta- og barnamála­ráðherra.
Inga Sæland menningar- og barnamálaráðherra mætti í Reykjavík síðdegis í vikunni og ræddi Bakkakotsmálið.Vísir/Lýður.

Inga Sæland barnamálaráðherra átti erfitt með að leyna tilfinningum sínum þegar hún ræddi við Reykjavík síðdegis um ábyrgð kerfisins sem brást drengjunum.

Ofbeldisbylgjan og ný vinnubrögð

Árásin í Garðabæ varð kveikjan að opinni umræðu um forvarnir unglinga.

Daníel Örn töframaður varð fyrir fólskulegri árás í Garðabæ fyrr í vikunni.
„Ég hélt að þetta væri bara búið, ég hélt ég væri bara … það fór eiginlega ekkert um hausinn á mér nema bara að ég var bara að reyna að standa upp. Ég var reyna að forða mér,“ segir Daníel Örn töframaður sem varð fyrir árás ungmenna í Garðabæ fyrr í vikunni.

Á meðan sérfræðingar benda á að við sem samfélag höfum sofnað á verðinum í forvörnum lýsir lögreglan nýstárlegri nálgun sem felst í að hún spilar tölvuleiki eins og Roblox með krökkum til að vara þau við hættum sem geta leynst á netinu.

Styttist í afnám verðtryggingarinnar?

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði stórtíðindi í vikunni í Bítinu á Bylgjunni þegar hún ræddi fyrstu skrefin um afnám verðtryggingar.

„Við ætlum núna um næstu áramót að stíga skref í átt að afnámi verðtryggingar,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Neyðarkall frá Landspítala

Heilbrigðismálin voru rædd í vikunni en berklasmit meðal starfsmanna og viðvarandi álag varð til þess að Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, sendi út skýrt neyðarkall.

„Hvenær í ósköpum er botninum náð á þessum vinnustað?,“ segir Steinunn Þórðardóttir hjá Læknafélaginu.

Hún hvetur fólk til að deila sinni reynslu frá bráðamóttöku svo ráðamenn átti sig á alvarleika ástandsins.

Konungshöllin og Epstein

Krónprinsessan Mette-Marit berst fyrir mannorði sínu eftir opinberun tölvupóstasamskipta við barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

„Þau voru í sambandi eða byrjuðu eiginlega að hafa samband eftir að hann var dæmdur sem barnaníðingur. Og það er náttúrulega það versta í þessu öllu náttúrulega,“ segir Erla Friðgeirsdóttir sem hefur verið búsett í Noregi í tæpa tvo áratugi.

Erla Friðgeirsdóttir, sem búsett hefur verið í Noregi í um tuttugu ár, lýsir vaxandi vonsvikni Norðmanna sem spyrja sig hvort Mette-Marit sé hæf til að verða drottning.


Viltu ná utan um allt þetta og meira til á innan við 20 mínútum? Hlustaðu á vikuuppgjör Máls málanna þar sem rýnt er í stærstu fréttirnar og samhengið dregið fram.

Þátturinn er frír og aðgengilegur á Tal.is eða í spilaranum hér fyrir ofan.

Fleiri greinar