Bakaríið
Bakaríið
09:00 - 12:00

Núna

Frostrósir & Eivör Pálsdóttir

Dansaðu Vindur

Næst

Frostrósir & Eivör Pálsdóttir

Dansaðu Vindur

Ein­falt hrá­efni sem gerir hvaða mál­tíð sem er svo miklu betri

Bylgjan skrifar
Ein­falt hrá­efni sem gerir hvaða mál­tíð sem er svo miklu betri
Heilsuvara vikunnar á Bylgjunni eru íslenskar kartöflur. Íslensku kartöflurnar eru sannkölluð þjóðargersemi sem allir elska, einfalt hráefni sem gerir hvaða máltíð sem er svo miklu betri.

Kartöflur eru einfaldlega ómissandi í eldamennsku, fjölhæfar sem meðlæti allt frá því að vera grillaðar, stökkar úr ofni, mjúkar í mús, steiktar á pönnu eða bara soðnar með smá smjöri. Ræktaðar af íslenskum bændum sem leggja áherslu á gæði og ferskleika árið um kring. Lífið verður alltaf aðeins betra!

Þær eru trefjaríkar, orkumiklar, seðjandi og henta jafn vel sem næringarrík heilsufæða og á hlaðið veisluborð. Íslenskur ferskleiki sem talar sínu máli og klikkar einfaldlega aldrei.

Skráðu þig og þú gætir unnið smekkfullan kassa af fersku, íslensku grænmeti frá Sölufélagi garðyrkjumanna.

ATH ef vinningar eru ekki sóttir innan mánaðar frá tilkynningu er vinningurinn ógildur

Þessi grein er unnin í samstarfi við Sölufélag íslenskra garðyrkjumanna.

Fleiri greinar