Ívar Halldórsson
Ívar Halldórsson
18:55 - 23:59

Núna

Daði Freyr

I'm Out And I Wanna Go Home

Næst

Role Model

Sally

Segir Geirfinnsmálið byggt á „18 þúsund blað­síðna skáld­skap“

Reykjavík síðdegis skrifar
Segir Geirfinnsmálið byggt á „18 þúsund blað­síðna skáld­skap“
Jón Ármann Steinsson bókaútgefandi segir að rannsókn og niðurstaða Geirfinnsmálsins hafi byggst á vísvitandi afvegaleiðingu og kerfisbundinni yfirhylmingu innan réttarkerfisins. Hann vinnur nú að sjónvarpsþáttaröð um málið og hyggst jafnframt opna stafrænan gagnabanka með tugþúsundum skjala tengdum rannsókninni.

Þetta kom fram í ítarlegu viðtali Jóns Ármanns í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, í kjölfar umdeilds viðtals hans á Samstöðinni sem vakið hefur mikla athygli undanfarna daga.

Jón Ármann sagði viðbrögðin eftir viðtalið hafa verið gríðarleg.

„Ég hef fengið bara holskeflu af þakklæti frá fólki,“ sagði hann og kvaðst snortinn yfir stuðningnum frá fólki sem hann þekkti ekki neitt.

Segir Valtý hafa afvegaleitt rannsóknina

Í viðtalinu ítrekaði Jón Ármann alvarlegar ásakanir sínar á hendur Valtý Sigurðssyni, fyrrverandi fulltrúa bæjarfógeta í Keflavík. Hann heldur því fram að Valtýr hafi vísvitandi afvegaleitt rannsókn Geirfinnsmálsins til að vernda eigin hagsmuni og tengsl.

Sagði Jón Ármann að Valtýr hefði staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar Geirfinnur Einarsson hvarf árið 1974 og ákveðið að beina rannsókninni inn á rangar brautir með því að tengja mannshvarfið við svonefnt spíramál.

„Hann ákveður að afvegaleiða málið og hylma yfir það,“ sagði Jón Ármann.

Valtýr hefur áður hafnað þessum ásökunum alfarið í aðsendri grein á Vísi.

„Ekki eitt einasta sannleikskorn“

Jón Ármann sagði að hópur hans hefði farið yfir nær átján þúsund blaðsíður af gögnum sem tengjast málinu og hélt því fram að rannsóknargögnin væru í raun tilbúningur.

„Þetta er allt skáldskapur. Þetta er ekki einn einasti sannleikskorn um hvernig hlutirnir gerðust,“ sagði hann.

Hann sagði jafnframt að gögn hefðu verið hreinsuð markvisst og að upplýsingar sem gætu grafið undan niðurstöðum rannsóknarinnar hefðu verið fjarlægðar úr skýrslum.

Að hans sögn verður opnaður stafrænn gagnabanki þar sem almenningur getur skoðað skjölin sjálfur með hjálp gervigreindar og leitarvéla.

Vinnur að sjónvarpsseríu í anda Fargo

Jón Ármann staðfesti einnig að hann væri þessa dagana að skrifa sjónvarpsseríu byggða á Geirfinnsmálinu. Hann sagðist vinna að verkefninu frá Króatíu þar sem hann sitji daglega við skrifborðið.

Lýsti hann verkefninu sem stemningsríkri þáttaröð í anda sjónvarpsþáttanna Fargo þar sem íslensk náttúra, diskótónlist og samfélagsandrúmsloft áttunda áratugarins verði í forgrunni.

„Þar inni í miðju þessa senaríós, þar er Geirfinnur veginn og þá fer allt á hliðina,“ sagði hann.

Aðspurður um tímaramma sagði Jón Ármann líklegt að þrjú til fjögur ár væru í að þættirnir yrðu tilbúnir.

Segist vilja leiðrétta eigin mistök

Í viðtalinu ræddi Jón Ármann einnig um persónuleg tengsl sín við Sævar Ciesielski, einn þeirra sem dæmdir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.

Sagðist hann hafa þekkt Sævar frá barnsaldri en síðar trúað þeim sögum sem gengu um að hann væri „fjöldamorðingi“.

„Og það er mín skömm. Og skömmina er ég að reyna að laga,“ sagði Jón Ármann.

Hann sagði það hafa markað tímamót þegar hann sá sjónvarpsupptöku þar sem Sævar spurði: „Af hverju völduð þið mig?“

„Þetta segir ekki maður sem hefur gert eitthvað. Þetta segir maður sem hefur verið útvalinn,“ sagði Jón Ármann og bætti við að það hefði orðið til þess að hann fór sjálfur að kafa ofan í málið.

Kallar eftir þingnefnd

Jón Ármann gagnrýndi jafnframt stjórnvöld og réttarkerfið harðlega og sagði hvorki dómsmálaráðuneyti, ríkissaksóknara né lögreglu hafa vilja til að skoða málið frekar.

Sagði hann nauðsynlegt að skipuð yrði sérstök þingnefnd til að rannsaka málið að nýju.

„Það þarf utanaðkomandi afl,“ sagði hann og bætti við að þrýstingur erlendis frá gæti jafnvel reynst nauðsynlegur.

Þá sagði hann að ýmis gögn hefðu verið eyðilögð og að reynt hefði verið að stöðva starf þeirra sem vinna með honum að rannsókninni, meðal annars með kærum á samfélagsmiðlasíður hópsins.

„Margir halda að ég sé að gera góðan hlut og aðrir halda að ég sé bara rugludallur,“ sagði Jón Ármann og hló. „Og ætli ég sé ekki bara mitt á milli.“

Fleiri greinar