Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Ísold og Helga

Klukkan Tifar

Næst

Ísold

Þoka yfir Reykjavík

Í­búar í Suður­hlíðum vilja líkbrennsluna úr hverfinu

Bítið skrifar
Í­búar í Suður­hlíðum vilja líkbrennsluna úr hverfinu
Íbúar í Suðurhlíðum og nágrenni segja óþef og mengun frá líkbrennslu við Fossvogskirkjugarð enn valda þeim miklum ama. Soffía Ámundadóttir, íbúi í hverfinu, sagði í Bítinu á Bylgjunni að bráðabirgðaleyfi starfseminnar rynni út í ágúst og að nú yrði að koma til alvöru breytinga.

Hún sagði líkbrennsluna gamla og úrelta og alls ekki boðlega í þéttri íbúðabyggð.

Að sögn Soffíu finna íbúar reglulega fyrir svörtum reyk og miklum óþef þegar brennt er.

„Ef þeir kannski eru ekki heima og það er opinn gluggi þá þarf að þurrka svart af víða í húsinu.“

Hún sagði suma íbúa ekki geta setið úti á palli eða haft opna glugga þegar verst lætur.

Fjórir skólar í grenndinni

Soffía benti á að fjórir skólar væru í nágrenni líkbrennslunnar. Hún sagðist sjálf hafa kennt í tveimur þeirra og áður þurft að svara spurningum barna um lyktina þegar brennt var á daginn.

Í viðtalinu lagði Soffía áherslu á að gagnrýni íbúanna beindist ekki að líkbrennslu sem slíkri né að syrgjendum, heldur að menguninni frá núverandi starfsemi.

„Við skiljum það alveg að fólk er að syrgja. En við erum að tala um mengunina.“

Hún sagði íbúana ekki endilega útiloka að starfsemin verði áfram á svæðinu, ef þar yrði komið upp nútímalegri tækni sem kæmi í veg fyrir lykt og reyk. Annars þyrfti að færa líkbrennsluna annað.

Að hennar mati er óásættanlegt að reka um 80 ára gamla líkbrennslu með þessum hætti í miðri borg.

Soffía sagði íbúana hafa reynt að fá svör og úrbætur með hefðbundnum leiðum en lítið gengið. Nú gæti næsta skref orðið að leita til lögfræðinga.

„Við verðum bara að fara þá leiðina ef þeir fara ekki að hlusta á okkur.“

Fleiri greinar