Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Gavin DeGraw

Chariot

Næst

Bee Gees

You Win Again

Allir í kjöri í Dalabyggð: „Hér eru í kjöri 534 ein­staklingar“

Reykjavík síðdegis skrifar
Allir í kjöri í Dalabyggð: „Hér eru í kjöri 534 ein­staklingar“
Í Dalabyggð fara fram óbundnar kosningar í sveitarstjórnarkosningunum þar sem enginn framboðslisti barst. Það þýðir að nánast allir kosningabærir íbúar sveitarfélagsins eru í kjöri.

Bergþóra María Jónsdóttir, kjörnefndarmaður í Dalabyggð, sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að alls væru 534 einstaklingar í kjöri; 281 karl og 253 konur.

„Allir eru í kjöri nema þeir sem hafa á lögbundinn hátt skorast undan,“ sagði Bergþóra.

Fjórir einstaklingar í Dalabyggð hafa skorast undan kjöri. Að sögn Bergþóru er þar um að ræða fólk sem áður hefur setið í sveitarstjórn, en samkvæmt reglum er hægt að skorast undan kjöri í jafnmörg kjörtímabil og viðkomandi hefur setið.

Sex gefið kost á sér

Þótt allir séu í raun í kjöri hafa nokkrir íbúar lýst því sérstaklega yfir að þeir séu tilbúnir að taka sæti í sveitarstjórn.

„Síðast þegar ég kíkti á þetta voru sex búnir að gefa kost á sér sem aðalmenn og tveir sem varamenn,“ sagði Bergþóra.

Kosið er um sjö aðalmenn og sjö varamenn. Kjósendur geta skrifað allt að 14 nöfn á kjörseðilinn en mega líka láta eitt nafn duga.

„Mjög margir fylla kjörseðilinn,“ sagði Bergþóra og bætti við að talningin gæti því tekið langan tíma.

„Jón á Hóli“ getur dugað

Kjörseðillinn verður handskrifaður og þurfa kjósendur að gæta þess að ljóst sé við hvern er átt.

„Þú þarft ekki endilega að skrifa fullt nafn og heimilisfang. Það þarf bara að vera algjörlega á hreinu við hvern er átt,“ sagði Bergþóra.

Hún sagði að í litlu samfélagi gæti til dæmis dugað að skrifa „Jón á Hóli“ ef aðeins einn maður kæmi til greina. Ef vafi væri á því væri þó öruggara að skrifa heimilisfang líka.

Skylda að taka sæti

Spurð hvað gerist ef einstaklingur er kosinn en vill ekki taka sæti sagði Bergþóra að almenna reglan væri skýr.

„Þeim sem eru heilir og hraustir og undir 65 ára ber að taka sæti í sveitarstjórn,“ sagði hún.

Ef fólk er veikt eða komið á aldur þarf að fara í ákveðið ferli til að fá undanþágu.

Bergþóra viðurkenndi að það gæti verið erfið staða ef einhver væri kosinn án þess að hafa áhuga á starfinu.

„Það getur verið mjög erfið staða, bæði fyrir þann sem lendir í því og líka fyrir þá sem vinna með honum.“

Íþróttahús, fjármál og húsnæði efst á baugi

Bergþóra sagði stærsta málið í Dalabyggð nú vera nýtt íþróttahús og sundlaug sem nýlega voru tekin í notkun. Sveitarfélagið væri skuldsett eftir framkvæmdirnar og því væri niðurgreiðsla skulda ofarlega á baugi.

Hún sagði fjármál sveitarfélagsins þó hafa verið í góðu horfi um árabil miðað við fámennan íbúafjölda.

Húsnæðismál eru einnig til umræðu, ekki síst ef laða á fleira fólk í sveitarfélagið.

„Okkur vantar fleira fólk, en þá eru oft húsnæðismálin,“ sagði Bergþóra og nefndi að nú væru meðal annars auglýstar nokkrar kennarastöður.

Fjórða skiptið með persónukjöri

Að sögn Bergþóru er þetta í fjórða sinn sem kosið er með þessum hætti í Dalabyggð. Hún sagði hreina flokkslista hafa verið sjaldgæfa í sveitarfélaginu um langt skeið.

„Hreinn flokkslisti, ég held að það sé ansi langt síðan það hafi verið hér,“ sagði hún.

Talning gæti orðið tímafrek á kjördag. Sex kjörklefar verða settir upp í Dalabúð, enda tekur kjósendur lengri tíma að handskrifa nöfn á seðilinn en að merkja við tilbúinn lista.

„Við erum komin með svolitla reynslu í þessu,“ sagði Bergþóra að lokum. 

Fleiri greinar