Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Phil Collins

Something Happened On The Way to Heaven

Næst

Billy Ocean

Caribbean Queen (No More Love On The Run)

Ný könnun og nýtt snið í kappræðunum í kvöld

Bítið skrifar
Ný könnun og nýtt snið í kappræðunum í kvöld
Kappræðurnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar á Sýn og Vísi í kvöld verða með öðru sniði en margir eiga að venjast. Sunna Sæmundsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttamenn hjá Sýn og Vísi, sögðu í Bítinu á Bylgjunni að markmiðið væri að fá skýrari svör frá oddvitunum og gera umræðuna aðgengilegri fyrir áhorfendur.

Níu oddvitar mæta í kappræðurnar í kvöld, en valið byggir á kosningaspá Vísis og könnunum sem sýna hvaða framboð eiga raunhæfa möguleika á manni inn.

Já-nei spjöld þegar umræðan fer út í skurð

Sunna sagði að þótt grunnformið yrði kunnuglegt yrði líka gripið til nýrra leiða til að halda umræðunni skýrri.

„Við ætlum að grípa til leiða til þess að fá skýra afstöðu frá frambjóðendum þegar okkur finnst umræða kannski komin út í skurð eða orðin að einhverju pólitísku blaðri.“

Oddvitarnir verða meðal annars með já-nei spjöld sem hægt verður að grípa til þegar kalla þarf eftir afdráttarlausri afstöðu.

Samgöngur, borgarlína og breytingar 

Að sögn Sunnu hafa samgöngumál, borgarlínan, bílastæðamál og þétting byggðar verið áberandi í þessari kosningabaráttu. Þá verði leikskólamálin einnig til umræðu.

Elísabet sagði jafnframt að eitt af því sem stæði upp úr í ár væri að nær allir flokkar væru að boða breytingar með einum eða öðrum hætti. Markmiðið í kvöld væri meðal annars að fá betur fram hvað sú breyting þýddi í raun.

Uppgjör við kjörtímabilið á léttari nótum

Í upphafi þáttar verður litið yfir farinn veg. Sunna sagði að þar yrði farið yfir síðustu fjögur ár í borginni, þar sem ýmislegt hefði gengið á.

Þær sögðu að farið yrði yfir helstu vendingar kjörtímabilsins, þar á meðal mannabreytingar og stóladans í borgarkerfinu, en á léttari nótum en þó með skýrum hætti.

Þá verða einnig sýnd sérstök innslög þar sem Bjarki Sigurðsson tók oddvitana tali í eins konar atvinnuviðtölum.

Hugmyndin er sú að oddvitarnir séu í raun að sækja um starf hjá kjósendum og með þessu fáist aðeins mannlegri mynd af fólkinu á bak við framboðin.

Ný könnun birt í beinni

Elísabet og Sunna staðfestu einnig að í kvöld yrði birt ný og síðasta könnun Maskínu fyrir kjördag.

Þær sögðu bæði að þar væru tíðindi og að niðurstöðurnar gætu gefið kappræðunum aukið vægi, ekki síst þar sem stór hluti kjósenda væri enn óákveðinn.

Kappræðurnar verða í beinni útsendingu á Sýn og Vísi í kvöld klukkan 19:30.

Fleiri greinar