Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Fleetwood Mac

Dreams

Næst

Fleetwood Mac

Dreams

Hildur úti­lokar ekki Sam­fylkinguna en segir sam­starf „ekki spennandi kost“

Reykjavík síðdegis skrifar
Hildur úti­lokar ekki Sam­fylkinguna en segir sam­starf „ekki spennandi kost“
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir flokkinn ganga óbundinn til borgarstjórnarkosninga en gerir skýra grein fyrir því að samstarf við Samfylkinguna sé ekki fyrsti kostur.

„Við útilokum ekki neitt en þú heyrir að þetta er ekki spennandi kostur fyrir okkur,“ sagði Hildur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Hún sagði Samfylkinguna hafa stýrt borginni nær óslitið í þrjá áratugi og að Sjálfstæðisflokkurinn væri ósáttur við þróun mála undir þeirri stjórn. Þar nefndi hún samgöngumál, skipulag hverfa, stöðu skóla, leikskólamál og rekstur borgarinnar.

„Sjálfstæðisflokkurinn verður auðvitað aldrei varadekk,“ sagði Hildur og vísaði til þess að aðrir flokkar hefðu að hennar mati haldið meirihluta Samfylkingarinnar á floti.

Segir samgöngumálin brenna á fólki

Hildur sagði samgöngumál eitt stærsta kosningamálið í borginni. Hún sagði lítið hafa gerst í málaflokknum í tuttugu ár og að borgarbúar væru orðnir langþreyttir á stöðunni.

„Fólk er orðið svolítið þreytt á að sitja fast í Ártúnsbrekkunni og heyra að eftir 15 ár komi einhver Borgarlína sem eigi að leysa allan vanda,“ sagði hún.

Hún hafnaði því að Sjálfstæðisflokkurinn væri á móti bættum almenningssamgöngum en sagði flokkinn vilja endurskoða samgöngusáttmálann og Borgarlínuverkefnið. Flokkurinn vilji öflugt hraðvagnakerfi með sérakreinum og góðum biðskýlum en ekki þrengingar að almennri umferð eða fjármögnun með vegtollum.

„Samfylkingin vill þrengja að umferð, Sjálfstæðisflokkurinn ekki. Samfylkingin vill fjármagna almenningssamgöngukerfið með vegtollum á almenna umferð, Sjálfstæðisflokkurinn ekki,“ sagði Hildur.

Vill brjóta nýtt land undir íbúðabyggð

Húsnæðismál voru einnig ofarlega á baugi. Hildur gagnrýndi þéttingarstefnu meirihlutans og sagði of mikið hafa verið byggt á stöðum þar sem fólk byggi í háum og dimmum húsum, með litlu aðgengi að grænum svæðum og fáum bílastæðum.

Sjálfstæðisflokkurinn vill brjóta nýtt land undir íbúðabyggð og nefndi Hildur Geldinganes, Kjalarnes, Úlfarsárdal, Keldnaland og framtíðarbyggð á Granda sem dæmi um svæði þar sem hægt væri að byggja meira.

Flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri

Hildur sagði afstöðu Sjálfstæðisflokksins til Reykjavíkurflugvallar skýra. Flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýri þar til betri kostur finnst.

„Það er ekki annar staður, þannig að þess vegna er hann bara í Vatnsmýri,“ sagði hún.

Hún sagði Hvassahraun ekki lengur raunhæfan kost og vísaði til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefði lagt fram tillögu um að festa flugvöllinn í aðalskipulagi til ársins 2040.

Vill selja eignir í samkeppnisrekstri

Aðspurð hvort Sjálfstæðisflokkurinn vilji selja eignir borgarinnar svaraði Hildur því játandi að hluta. Flokkurinn vilji selja fyrirtæki í samkeppnisrekstri, þar á meðal Malbikunarstöðina Höfða og Ljósleiðarann.

Hún sagði einnig óeðlilegt að borgin héldi áfram að leggja fé í Carbfix í gegnum Orkuveituna, þótt verkefnið sjálft væri gott.

„Við viljum hafa Orkuveituna bara í sínu kjarnahlutverki sem er að sjá borgarbúum, fólki og fyrirtækjum fyrir vatni, orku og fráveitu,“ sagði Hildur.

Fjármuni af sölu eigna vildi hún nota til að greiða niður skuldir og ráðast í innviðafjárfestingar, meðal annars í grunnskólum, leikskólum, gangstéttum og íþróttamannvirkjum.

Lokaspretturinn erilsamur

Hildur sagði lokadaga kosningabaráttunnar erilsama en skemmtilega. Kosningamiðstöð flokksins á Suðurlandsbraut væri full af fólki sem ynni að því að „sigla síðustu dögunum heim“.

„Við erum að heyra í kjósendum í síma og ganga í hús. Ég er mikið að mæta í viðtöl, kappræður og panela. Þetta er bara skemmtilegur lokasprettur,“ sagði Hildur.

Fleiri greinar