Þetta kom fram í ítarlegu viðtali við Agnesi Ósk Marzellíusdóttur, lögreglufulltrúa í fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Málið hófst að kvöldi 5. maí þegar Arion banki hafði samband við lögreglu eftir að upp komst um umfangsmiklar og óheimilar millifærslur úr bankanum. Samkvæmt Agnesi fór rannsókn samstundis af stað.
„Við köllum út fólk í þetta, förum að reyna að átta okkur á stöðunni og fljótlega sjáum við að viðkomandi sem grunaður er um brotið er farinn úr landi,“ sagði hún.
Rakið frá Íslandi til Rúmeníu
Lögregla hóf þegar í stað samstarf við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra og í kjölfarið komu bæði Europol og Eurojust að málinu.
Samhliða því sem fjármunirnir voru raktir milli reikninga vann lögregla að því að staðsetja manninn sjálfan.
Í ljós kom að hann hafði yfirgefið Ísland með Norrænu og farið í gegnum Danmörku. Þaðan lá leiðin áfram um Þýskaland áður en yfirvöld höfðu uppi á honum í Rúmeníu.
„Við höfðum verið í samskiptum við Danmörku sem staðfestu við okkur að hann væri farinn úr Danmörku. Þá héldum við bara áfram leitinni í gegnum Þýskaland og enduðum þarna í Rúmeníu,“ sagði Agnes.
Maðurinn var handtekinn 6. maí, innan við sólarhring frá því að lögreglu barst tilkynning um málið.
Keypti sér bifreið fyrir illa fengið fé
Samkvæmt upplýsingum sem fram komu í hádegisfréttum Bylgjunnar hafði maðurinn meðal annars keypt sér bifreið fyrir hluta fjárins áður en hann flúði land. Lögregla hefur lagt hald á bifreiðina.
Agnes staðfesti að fjármunirnir hefðu að hluta verið komnir úr landi þegar rannsókn hófst.
„Við hófum strax endurheimt. Bankafærslur ganga rosalega hratt í dag. Hlutirnir gerast bara eins og fingri sé smellt,“ sagði hún.
Lögregla telur að tekist hafi að endurheimta um 95 prósent fjárhæðarinnar.
„Þetta er svona nútímabankarán“
Þrátt fyrir að margir hafi talað um bankarán segir Agnes mikilvægt að halda sig við rétta lagalega skilgreiningu.
„Til þess að um rán sé að ræða þarf ofbeldi að hafa verið beitt eða því hótað. Þetta er þjófnaður,“ sagði hún.
Hún viðurkenndi þó að hefðbundið orðalag nái illa utan um brot af þessu tagi.
„Það vantar eiginlega áhrifaríkara orð yfir þetta. Fólk upplifir þetta meira eins og bankarán.“
Aðspurð sagði hún þó að ekki hefði verið um hefðbundið tölvuinnbrot að ræða og að lögregla gæti ekki greint nánar frá aðferðinni á meðan rannsókn stæði yfir. Arion banki hefur áður staðfest að misbrestur í kerfi bankans hafi verið nýttur við brotið.
Tölvusporin segja sína sögu
Agnes sagði rannsóknina hafa byggst að stórum hluta á stafrænum gögnum og rekjanleika fjármagnsflæðis.
„Tölvusporin segja ákveðna sögu og það er saga sem þú breytir ekki eftir á,“ sagði hún.
Hún hrósaði jafnframt samstarfi íslenskra og erlendra yfirvalda og sagði málið sýna hversu mikilvægt væri að stofnanir gætu miðlað upplýsingum hratt sín á milli þegar um fjármunabrot væri að ræða.
Næsta skref í málinu er að maðurinn verði fluttur til Íslands þar sem rannsókn og málsmeðferð halda áfram.









