Að hans mati er Miðflokkurinn mest áberandi á miðlinum um þessar mundir, en fleiri flokkar hafi þó einnig gert ágæta hluti. Margir séu hins vegar annaðhvort lítt sýnilegir eða að búa til efni sem henti samfélagsmiðlum illa.
Miðflokkurinn stendur sig best
Sebastian sagði Miðflokkinn hafa náð best utan um framsetningu sína á TikTok í þessari kosningabaráttu. Þar skipti máli að flokkurinn hefði verið með skýrt andlit í forgrunni.
„Það er klárlega einn flokkur sem er að standa sig langbest og það er Miðflokkurinn.“
Hann nefndi sérstaklega Ara Edvald, oddvita flokksins í Reykjavík, og sagði það hafa skipt máli að kjósendur fengju að kynnast honum sem manneskju á miðlinum, fremur en að sjá aðeins hefðbundna pólitíska kynningu.
Að sögn Sebastians dugar ekki að setja einfaldlega myndavél fyrir framan frambjóðendur og láta þá lesa upp stefnu sína. Slíkt efni nái sjaldnast athygli á TikTok, þar sem hraði og persónuleg nálgun ráði miklu.
„Þú verður að fá manneskjuna því að athyglin hjá ungu fólki er eiginlega engin.“
Hann sagði lykilatriði að efnið væri bæði skemmtilegt og upplýsandi. Fólk þyrfti að fá ástæðu til að stoppa við myndbandið og horfa áfram.
Of margir flokkar nálgist miðilinn eins og auglýsingu
Sebastian taldi marga flokka enn hugsa samfélagsmiðla eins og hefðbundnar auglýsingar. Þar væri of mikil áhersla lögð á formlega framsetningu í stað þess að laga boðskapinn að miðlinum sjálfum.
Hann sagði einnig suma flokka dreifa fókusnum of mikið með því að hafa marga frambjóðendur í forgrunni í stað þess að byggja utan um einn eða fáa sem kjósendur gætu tengt við.
Fleiri flokkar fá þó ágætiseinkunn
Þótt Miðflokkurinn hafi staðið upp úr að hans mati sagði Sebastian bæði Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna hafa gert ýmislegt vel á TikTok. Aðrir flokkar hefðu hins vegar verið mun minna sýnilegir eða ekki fundið réttan tón.
Sérstaklega nefndi hann að hann hefði séð lítið af Sósíalistaflokknum á miðlinum.
Unga fólkið vill meira
Í viðtalinu kom einnig fram að ungt fólk væri ekki endilega hrifið af því að stjórnmálafólk hellti sér inn á samfélagsmiðla örfáum vikum fyrir kosningar en hyrfi svo aftur. Að mati Sebastians þurfa flokkar að vera sýnilegri og meira í samtali við kjósendur á milli kosninga.
Þannig væri líklegra að fólk upplifði nærveru og trúverðugleika, í stað þess að sjá aðeins stutta og ákafa kosningaherferð.
Enn tími til að bæta stöðuna
Þrátt fyrir að aðeins sé vika til kosninga sagði Sebastian enn fullt svigrúm fyrir flokka til að bæta sig á samfélagsmiðlum. Það þyrfti þó að gera með markvissu efni sem hentaði miðlinum og næði strax athygli.
„Það er alls ekki of seint, það er ein vika eftir og þetta er í rauninni mikilvægasta vikan núna.“









