Að sögn Gunnars vakti það sérstaka athygli að efni frá stofnunum á borð við FBI og NASA væri nú orðið sýnilegt opinberlega, eftir að hafa lengi verið utan seilingar.
Hann sagðist hafa brugðist sterkt við þegar gögnin birtust á föstudag.
„Ég fór náttúrulega bara í geðshræringu á föstudaginn þegar þetta kom út. Varð bara óvinnufær.“
Hann sagði þó að eftir nánari skoðun hefði orðið ljóst að um væri að ræða fyrsta skref fremur en afgerandi uppljóstrun.
„Þetta er ágætis byrjun.“
Myndir frá tunglinu og gömul gögn
Það sem vakti hvað mesta athygli hjá Gunnari voru meðal annars ljósmyndir sem teknar voru við tunglið og gögn sem sýna samskipti geimfara um óútskýrð ljós og hluti.
Hann sagði þó að hluti efnisins hefði áður verið aðgengilegur með öðrum hætti og að þarna væri ekki um neina eina „smoking gun“ að ræða. Að hans mati skipti engu að síður máli að bandarísk yfirvöld væru nú sjálf að birta efnið á þessum vettvangi.
Meira efni gæti komið í vikulegum skömmtum
Samkvæmt Gunnari bendir ýmislegt til þess að fleiri gögn verði birt á næstu vikum. Hann sagði að þingkonan Anna Paulina Luna hefði kallað eftir frekari skjölum og að nýtt efni gæti komið fram strax á næstu dögum.
Hann taldi þó ekki ástæðu til að treysta því um of að stjórnvöld hygðust með þessu veita fullt gagnsæi.
„Ég trúi því ekki að ásetningurinn sé eitthvað að stuðla að gegnsæi.“
Telur ekki að málið verði leyst af stjórnvöldum
Í viðtalinu sagðist Gunnar Dan áfram telja að almenningur yrði sjálfur að mynda sér skoðun á málinu í stað þess að bíða eftir endanlegri staðfestingu frá yfirvöldum.
„Uppljóstrunin verður aldrei af hálfu ríkis. Þetta er „people disclosure“ og við þurfum að fara að rannsaka þetta sjálf og draga okkar eigin ályktanir.“
Hann sagði jafnframt að stærsta spurningin væri enn ósvarað: hvort um væri að ræða tækni frá öðrum hnöttum, annarri vídd eða einhverju allt öðru sem mannkynið skildi enn ekki til fulls.









