Bylgjan
Bylgjan
23:00 - 23:59

Núna

Pat Benatar

Love Is A Battlefield

Næst

Elton John

This Train Don't Stop There Anymore

Tíu þúsund börn talin bíða eftir þjónustu

Bítið skrifar
Tíu þúsund börn talin bíða eftir þjónustu
ÖBÍ réttindasamtök og aðstandendur barna á biðlistum vilja að biðlistar eftir lögbundinni þjónustu verði kosningamál í sveitarstjórnarkosningunum. Í Bítinu á Bylgjunni sögðu þær Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, og Stefanía Hulda Marteinsdóttir frá bidlisti.is að vandinn væri orðinn svo stór að fjölskyldur væru að bugast og kerfin aðeins að velta byrðunum sín á milli.

Þær segja bið vera víða eftir nauðsynlegri þjónustu, meðal annars eftir talmeinaþjónustu, greiningum, NPA, liðveislu og félagslegu húsnæði. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og undirskriftasafnanir hafi lítið gerst.

Bið eftir nær allri lögbundinni þjónustu

Alma sagði að sama hvert litið væri, þar blasti við biðlisti. Það ætti við um margvíslega þjónustu sem sveitarfélög bæru ábyrgð á að veita, en sem fólk þyrfti samt að bíða eftir mánuðum eða árum saman.

„Það er bið eftir öllu, allri þessari þjónustu.“

Hún sagði að ÖBÍ hefði farið af stað með átakið xbidlistinn.is til að vekja athygli á því að enginn vildi vera á biðlista. Þótt nálgunin væri sett fram með örlitlum húmor væri undirliggjandi staða grafalvarleg.

Yfir fimm þúsund börn á biðlista eftir talmeinaþjónustu

Stefanía sagði lengsta biðlistann nú vera eftir talmeinaþjónustu. Þar væru um 5.300 börn á biðlista og biðin gæti verið þrjú til fjögur ár.

Hún nefndi einnig bið eftir geðlæknisþjónustu barna og þjónustu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, þar sem biðin væri einnig löng. Spurð hvort heildarfjöldinn gæti verið í kringum tíu þúsund börn sagði hún það ekki óraunhæft.

Fjölskyldur að bugast

Stefanía sagði foreldrana reyna sitt allra besta, en margir væru komnir að þolmörkum eftir langvarandi leit að þjónustu og endalaust álag.

„Það er verið að keyra heilu fjölskyldurnar í kaf af þjónustuleysi.“

Alma tók undir það og sagði að þegar ekkert væri gert færðust vandamálin einfaldlega yfir á önnur kerfi, fjölskyldurnar sjálfar, heilbrigðiskerfið og síðar jafnvel örorku- og endurhæfingarkerfið.

Ríki og sveitarfélög vísa hvort á annað

Í viðtalinu kom fram að bæði ríki og sveitarfélög bentu hvort á annað þegar spurt væri hver bæri ábyrgð á stöðunni. Að mati Ölmu væri lítið samtal um raunverulegar lausnir, þótt úttektir, skýrslur og ábendingar hefðu lengi legið fyrir.

Stefanía sagði sömuleiðis að margir vildu hlusta, en að enginn virtist vita hvar ætti að byrja.

Vilja að málið verði kosningamál

Alma sagðist vonsvikin yfir því hve lítið væri rætt um málefni fatlaðs fólks og barna á biðlistum í aðdraganda kosninga. Hún sagði ljóst að staðan myndi aðeins versna ef ekkert yrði að gert.

Á heimasíðunum xbidlistinn.is og bidlisti.is er farið yfir málaflokkinn og kallað eftir því að sveitarfélög og stjórnvöld taki ábyrgð.

https://www.bidlisti.is/

Fleiri greinar