Thelma ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í kjölfar umræðu um Gunnar Gíslason, sem hefur sótt um fimmtíu störf án þess að fá vinnu. Hún sagði að sagan væri ekki einsdæmi og að svipuð umræða kæmi reglulega upp.
Segir samkeppnina mjög mikla
Thelma sagði að í ráðningum stjórnenda og sérfræðinga sæjust nú dæmi um að yfir hundrað umsóknir bærust um eitt starf á framkvæmdastjórastigi.
Að hennar sögn geta margir umsækjendur uppfyllt allar grunnkröfur á pappír, en þegar svo margir hæfir sækja um fari að ráða úrslitum hvort viðkomandi hafi sértæka reynslu sem passi sérstaklega við starfsemina eða geirann sem um ræðir.
Hún sagði því ekki endilega rétt að álykta að fólk yfir fimmtugu ætti almennt erfiðara með að fá vinnu, þó fordómar geti vissulega verið til staðar.
Aldur ekki eina skýringin
Thelma sagði að bæði eldri og yngri umsækjendur gætu lent í því að komast ekki áfram í ráðningarferli. Yngra fólk gæti til dæmis orðið undir vegna reynsluleysis, á meðan eldra fólk stæði frammi fyrir öðrum efasemdum.
„Það eru vissulega einhverjir fordómar úti, bæði sem snúa að aldri en líka kyni og öðrum þáttum.“
Hún sagði þó að í mörgum tilvikum væri einfaldari skýring sú að fjöldi hæfra umsækjenda væri einfaldlega mjög mikill.
Reynsla er áfram eftirsótt
Thelma sagði reynslu almennt vera verðmæta á vinnumarkaði og nefndi sérstaklega að víða væri nú leitað að reynslumeira fólki en áður, meðal annars í tæknistörfum.
Að hennar sögn hefur þróunin í gervigreind og öðrum tæknilausnum aukið þörfina fyrir fólk sem geti metið, yfirfarið og unnið áfram með það sem tæknin skilar.
Thelma sagði að þegar fólk með mikla stjórnunarreynslu sækti um störf neðar í skipuriti vöknuðu stundum spurningar hjá ráðningaraðilum.
Þá væri til dæmis horft til þess hvort viðkomandi væri of hæfur, of dýr eða líklegur til að stoppa stutt í starfi. Í slíkum tilvikum gæti skipt máli að hafa frumkvæði að samskiptum og útskýra áhuga sinn á starfinu nánar.
Hún sagði að stundum væri fólk einfaldlega komið á þann stað að það vildi ekki lengur vera í framkvæmdastjórastarfi, heldur leitaði sér að einfaldara hlutverki.
Mælir með að fólk láti vita af sér
Spurð hvað umsækjendur geti gert til að auka líkurnar á viðtali sagði Thelma mikilvægt að láta vita af sér, bæði hjá ráðningarfyrirtækjum og stjórnendum.
Hún sagði það ekki tryggja viðtal, en skipti máli að komast á radarinn. Í sumum tilvikum gæti símtal eða samtal hjálpað til við að skýra betur hvers vegna viðkomandi sækir um ákveðið starf og hvaða væntingar hann hefur.
Að mati Thelmu er vinnumarkaðurinn nú þyngri en hann hefur verið um tíma. Hún sagði fleiri vera án atvinnu og fólk almennt lengur að leita sér að starfi en áður.
Hún sagðist helst bera núverandi stöðu saman við tímabil átta síðustu ára þegar samkeppnin var hvað hörðust, þó hún tæki fram að ástandið væri ekki sambærilegt við Covid tímabilið.









