Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Billie Eilish

Birds Of A Feather

Næst

Fréttastofa Bylgjunnar

Fréttir

Átta þúsund Ís­lendingar fara ár­lega í golfferðir

Reykjavík síðdegis skrifar
Átta þúsund Ís­lendingar fara ár­lega í golfferðir
Golfferðir Íslendinga erlendis eru orðnar stór hluti af golfhreyfingunni og skapa árlega milljarða í veltu, að sögn Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambands Íslands. Hún sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að um átta þúsund Íslendingar færu árlega í slíkar ferðir og að vinsældir þeirra færu vaxandi.

Hulda sagði jafnframt að veruleg tækifæri væru á Íslandi til að laða að erlenda kylfinga, meðal annars með miðnæturgolfi, sérstöðu valla landsins og aukinni ferðaþjónustu tengdri golfi.

Hún vísaði til skýrslu sem unnin var af KPMG þar sem fram kom að  golfferðir erlendis væru orðnar umsvifamikill markaður hér á landi. Veltan væri um tvær komma fimm til átta milljarðar á ári. 

Að hennar sögn er þar miðað við að meðalferð kosti um 350 þúsund krónur á mann. Hún sagði einnig að íslenskar ferðaskrifstofur hefðu byggt upp öfluga golfskóla og kennsluferðir, sérstaklega til Spánar, þar sem margir sæktu bæði leik og leiðsögn.

Golfið orðið hluti af ferðastíl fólks

Hulda sagði ímynd golfsins einnig hafa breyst á síðari árum. Þótt íþróttin væri sums staðar enn talin dýr og fremur fyrir efnameira fólk, væri það ekki lengur eini veruleikinn.

Að hennar sögn tengja margir golfið nú ferðalögum, útiveru og lífsstíl frekar en eingöngu keppni. Pakkaferðir hafi gert fleiri kleift að fara, þó ljóst sé að þær krefjist engu að síður ágætra ráðstöfunartekna.

Erlendir kylfingar eyða meira en almennir ferðamenn

Í viðtalinu kom einnig fram að Ísland gæti sótt meira í erlenda golfmarkaði en nú er gert. Hulda sagði erlenda kylfinga þegar skila um 800 milljónum króna í tekjur og að þeir eyði að jafnaði um 60 prósent meira en almennir ferðamenn.

Að hennar mati liggja tækifærin meðal annars í sérstöðu landsins, náttúrunni og birtunni yfir sumartímann.

„Þú getur spilað fram yfir miðnætti og alla nóttina þess vegna.“

Hún nefndi einnig að mikil tækifæri fælust í því að tengja golf betur við komur skemmtiferðaskipa, sérstaklega á stöðum eins og Ísafirði, Seyðisfirði og Akureyri.

Segir fjárfestingu þurfa til að nýta tækifærin

Hulda sagði þó að vildu golfklúbbar og ferðaþjónustuaðilar taka stærri skref í átt að erlendum markaði þyrfti fjárfestingu. Þar nefndi hún meðal annars golfsett, golfbíla og aðra aðstöðu sem erlendir kylfingar væru vanir.

Hún sagði mörg tækifæri blasa við, en að nú þyrfti að ákveða hvort ráðist yrði í frekari uppbyggingu.

Golfsumarið að fara af stað

Spurð um stöðuna innanlands sagði Hulda að golfsumarið væri nú að hefjast fyrir alvöru, þótt blautur vetur hefði valdið því að sums staðar hefði þurft að bíða með opnun valla og fara varlega með þung tæki.

Að hennar sögn eru vellirnir þó almennt að koma vel undan vetri og víða er verið að undirbúa hreinsunardaga. 

Fleiri greinar