Hún sagði mikla eftirspurn nú knúna áfram af örum vexti gervigreindar, sem kalli á sífellt meiri gagnavinnslu og hýsingu tölvubúnaðar. Ísland ætti þar raunhæfan möguleika á að laða til sín stór verkefni og skapa verðmæt tæknistörf víða um land.
Flest okkar nota gagnaver daglega
Bergþóra sagði gagnaver vera staði þar sem tölvubúnaður er hýstur og þau séu orðin órjúfanlegur hluti af daglegu lífi fólks, jafnvel þótt margir geri sér ekki grein fyrir því.
„Gagnaverið er í rauninni það sem hýsir þessa stafrænu innviði sem reka okkar nútímasamfélög.“
Að hennar sögn eru gögn þar geymd og unnin, og gildir það einnig um gervigreind, bæði þjálfun hennar og notkun.
Ísland í góðri stöðu en eftir öðrum Norðurlöndum
Bergþóra sagði Ísland hafa marga kosti fram yfir önnur lönd þegar kemur að rekstri gagnavera. Þar nefndi hún loftslagið, nálægð við orkugjafa og að hér væri hægt að nýta sjálfbæra orku í stað kola, gass eða kjarnorku sem víða knýja sams konar starfsemi erlendis.
Hún sagði einnig að hér væri hagstæðara að flytja gögn en orku, og því gæti verið skynsamlegt að byggja gagnaver nálægt orkuuppsprettum.
„Það er miklu ódýrara að flytja gögn heldur en að flytja orku.“
Að hennar sögn hefur nýr gagnastrengur, sem tekinn var í notkun fyrir þremur árum, skipt miklu máli fyrir greinina. Ísland sé þó enn á eftir til dæmis Noregi og Danmörku, sem hafi skipulagt uppbyggingu geirans markvissar.
Gervigreindin ýtir undir vöxtinn
Bergþóra sagði að gagnaversiðnaðurinn hefði verið í vexti áður en gervigreind tók við sér, en að hún hefði hraðað þróuninni verulega.
„Þessi mikli vöxtur og þessi mikli eftirspurnarþrýstingur sem er núna vegna gagnavera, hann er út af því hvað gervigreindin hefur verið að koma sterkt inn.“
Hún sagði þetta ekki iðnað sem væri að fara neitt, heldur geira sem myndi aðeins stækka á næstu árum.
Verðmæt störf á landsbyggðinni
Í viðtalinu kom fram að gagnaver skapi ekki aðeins störf við rekstur og öryggi gagnaveranna sjálfra, heldur einnig hjá tæknifyrirtækjum og í sérfræðistörfum sem tengjast alþjóðlegri þjónustu.
Bergþóra nefndi að Borealis væri með starfsemi á Blönduósi, í Reykjanesbæ, á Korputorgi og í Finnlandi. Hún sagði gagnaver sérstaklega áhugaverð fyrir Ísland þar sem þjónustan sé seld úr landi nánast samstundis í gegnum gagnastrengi, án hefðbundins flutningskostnaðar.
„Við seljum þjónustu sem við getum selt næstum hvert sem er í heiminum.“
Að hennar mati gæti gagnaversiðnaðurinn orðið mjög verðmæt stoð í íslensku atvinnulífi ef næg orka yrði til staðar og stjórnvöld héldu áfram að bæta rekstrarumhverfið.









