Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Sigga Beinteins

Allt eða ekkert

Næst

Sigga Beinteins

Allt eða ekkert

Hefur sótt um 50 störf án árangurs og spyr hvort aldurinn spili inn í

Reykjavík síðdegis skrifar
Hefur sótt um 50 störf án árangurs og spyr hvort aldurinn spili inn í
Gunnar Gíslason, sem er með MBA-gráðu og víðtæka stjórnunarreynslu, segir lítið hafa þokast í atvinnuleit sinni þrátt fyrir að hafa sótt um um fimmtíu störf frá því hann missti vinnuna í janúar 2024. Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni sagðist hann sjaldnast komast í starfsviðtal og velti því fyrir sér hvort aldur, reynsla eða menntun gætu verið að vinna gegn sér.

Hann segir tilganginn með pistli sínum á Vísi ekki vera að biðja um vorkunn heldur vekja athygli á stöðu fólks á miðjum aldri sem vilji vinna en fái ekki tækifæri til að sýna hvað það geti.

Sjaldan komist að borðinu

Gunnar sagði að hann hefði sótt um margvísleg störf, þar á meðal skrifstofustörf, rekstrarstjórastörf, viðskiptastjórastörf og framkvæmdastjórastörf, en nánast aldrei fengið að kynna sig fyrir ráðendum.

„Maður hefur aldrei komist að borðinu til að segja frá sinni reynslu og menntun.“

Að hans sögn hefur hann aðeins tvisvar eða þrisvar komist lengra í ráðningarferli. Í flestum tilvikum hafi hann annaðhvort fengið seint að vita að búið væri að ráða í starfið eða alls engin svör.

Veltir fyrir sér aldri og of mikilli reynslu

Gunnar sagðist ekki vilja tala um fordóma, en viðurkenndi að hann velti því fyrir sér hvort aldurinn skipti máli þegar fólk er metið til starfa. Hann er 57 ára og segir fleiri hafa haft samband við sig í dag eftir birtingu pistilsins og lýst svipaðri reynslu.

Hann sagði einnig mögulegt að sumir litu svo á að hann væri of reynslumikill eða of menntaður fyrir ákveðin störf, en að hann fengi sjaldnast færi á að útskýra hvers vegna hann sækti um viðkomandi starf.

„Ég væri ekki að sækja um starf sem ég taldi mig of hæfan í ef mig langaði ekki að vinna við það.“

Spurður hvað hann hefði fram að færa fyrir fyrirtæki sagði Gunnar að hann væri ábyrgur, heilbrigður og vildi hafa gaman í vinnunni, en láta verkin tala. Hann benti einnig á að hann hefði í fyrri störfum náð mælanlegum árangri, meðal annars í rekstri matvælafyrirtækis þar sem velta hefði aukist verulega á tveimur árum.

Hann sagðist ekki trúa því að samfélagsmiðlar ættu að ráða úrslitum þegar fólk væri metið til starfa og að hann vildi frekar að atvinnurekendur tækju einfaldlega upp símann og byðu fólki í samtal.

Segir umræðuna hafa skipt máli

Gunnar sagði viðbrögðin við pistlinum hafa verið góð og að hann væri þegar kominn með fundi og möguleg tækifæri í kjölfar birtingarinnar. Það skipti þó ekki síður máli að umræðan hefði náð út til fleiri sem væru í svipaðri stöðu.

„Ég held að það sé bara fullt af góðu fólki á þessum aldri sem getur nýst vel alls staðar.“

Að hans sögn var það einmitt meginmarkmiðið með skrifunum: að minna á að hópur fólks með reynslu, þekkingu og vilja til að vinna sé til staðar, en fái ekki alltaf tækifæri til að sýna hvað í því býr.

Fleiri greinar