Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

The Weeknd & Daft Punk

I Feel It Coming

Næst

The Weeknd & Daft Punk

I Feel It Coming

Vantar fleiri ljós­mæður

Bítið skrifar
Vantar fleiri ljós­mæður
Það vantar ljósmæður á Íslandi að sögn Unnar Berglindar Friðriksdóttur, formanns Ljósmæðrafélags Íslands, en hún segir vandann ekki síst felast í því að mönnunarviðmið séu löngu úrelt. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun, á alþjóðlegum degi ljósmæðra, sagði hún starfsemina hafa breyst mikið á undanförnum árum án þess að viðmið hafi fylgt með.

Hún sagði félagið ætla að leggja sérstaka áherslu á ný og raunhæf mönnunarviðmið í næstu kjarabaráttu, enda hafi verkefnum fjölgað verulega þótt fæðingartíðni hafi lækkað.

Unnur sagði að þótt færri börn fæddust nú en áður væri vinnan við hverja konu mun umfangsmeiri en áður.

„Mönnunarmódelin okkar eru bara svo gömul. Þau eru frá síðustu öld og starfsemin hefur breyst svo mikið,“ sagði Unnur.

Að hennar sögn þarf í dag að sinna fleiri rannsóknum, fleiri prófum og meira eftirliti en áður, þar sem þekking í mæðra- og ungbarnavernd hafi aukist verulega.

Námsplássin stærsti flöskuhálsinn

Hún sagði áhuga á ljósmóðurfræðum enn mikinn á Íslandi og að fleiri sæktu um námið en kæmust að. Vandinn væri fyrst og fremst sá að námið væri mjög verklegt og því væri erfitt að fjölga nemendum mikið.

Að sögn Unnar er aðeins hægt að útskrifa að hámarki fjórtán ljósmæður á ári hér á landi og þau námspláss séu þegar fullnýtt.

Unnur sagði að bóklegi hlutinn væri ekki helsta hindrunin, heldur það að námið byggði á verklegri þjálfun þar sem nemendur þyrftu að læra störfin í raunverulegum aðstæðum.

Segir stöðu kvenna og ljósmæðra haldast í hendur

Í viðtalinu var einnig rætt um stöðu ljósmæðra á heimsvísu. Unnur sagði Ísland standa vel miðað við mörg önnur lönd, meðal annars vegna þess að hér ynnu ljósmæður og læknar vel saman og ljósmæður nytu meira sjálfstæðis en víða annars staðar.

Hún sagði hins vegar að víða væri litið niður á ljósmæður og að það hefði bein áhrif á þjónustu við konur.

Að hennar mati sýnir það vel hversu nátengd staða ljósmæðra sé réttindum og heilsu kvenna.

Unnur sagði þróunina sums staðar í heiminum sérstaklega áhyggjuefni, meðal annars þar sem keisaraskurðum hafi fjölgað mikið. Hún nefndi sem dæmi að í sumum löndum væri kerfið þannig úr garði gert að það borgaði sig frekar að framkvæma keisaraskurði en að styðja konur í gegnum náttúrulega fæðingu.

Hún sagði það geta haft alvarleg áhrif á heilsu kvenna til lengri tíma og á næstu meðgöngur, enda væri um stórar aðgerðir að ræða.

Hvetur fólk til að skrifa undir alþjóðlega áskorun

Ljósmæðrafélag Íslands stendur nú að undirskriftasöfnun í tengslum við alþjóðlegan dag ljósmæðra. Unnur hvatti landsmenn til að taka þátt og sagði markmiðið vera að sýna stuðning við ljósmæður og betri þjónustu við konur um allan heim.

Fleiri greinar