Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Mike & The Mechanics

Over My Shoulder

Næst

Mike & The Mechanics

Over My Shoulder

Ari Edwald vill „stóra vorhreingerningu“ í borginni

Reykjavík síðdegis skrifar
Ari Edwald vill „stóra vorhreingerningu“ í borginni
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir skipulagsmál borgarinnar í ólestri og að endurskoða þurfi Borgarlínu og þéttingarstefnu frá grunni. Hann hafnar ásökunum um kvenfyrirlitningu og segir stjórnsýslukostnað Reykjavíkurborgar kalla á niðurskurð.

Ari segir kosningabaráttuna vera að harðna þegar tæpar tvær vikur eru til kosninga. Hann telur fylgi flokkanna á mikilli hreyfingu og að úrslitin geti ráðist á allra síðustu metrunum.

Ari var gestur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem rætt var um áherslur Miðflokksins í borginni, skipulagsmál, rekstur Reykjavíkurborgar og ummæli sem féllu um hann í þætti á Samstöðinni.

Hafnar ásökunum um kvenfyrirlitningu

Í upphafi viðtalsins var Ari spurður út í ummæli sem féllu í dagskrárliðnum Reynsluboltum á Samstöðinni, þar sem hann var sakaður um kvenfyrirlitningu.

Ari hafnaði því alfarið.

„Ég kannast bara ekkert við það og hef alla tíð verið mjög jafnréttissinnaður maður,“ sagði Ari.

Hann sagði umræðuna hafa verið „ógeðfellt útspil“ og gagnrýndi meðal annars að vísað hefði verið til þess að hann hefði verið yfirmaður Láru Ómarsdóttur þegar hann var forstjóri 365. Hann sagði þau ekki hafa átt í slíkum samskiptum og að fréttamenn á gólfinu hefðu almennt ekki litið á forstjóra félagsins sem sinn daglega yfirmann.

Ari vísaði einnig til reynslu sinnar úr atvinnulífinu og sagði að þegar hann hefði verið forstjóri Mjólkursamsölunnar hefði fyrirtækið farið í gegnum jafnlaunavottun. Niðurstaðan hefði verið 1,2 prósenta óútskýrður launamunur konum í vil.

Segir skipulagsmálin í ólestri

Ari sagði Miðflokkinn hafa sett mark sitt á kosningabaráttuna á skömmum tíma, ekki síst með gagnrýni á Borgarlínu, samgöngumál og þéttingu byggðar.

Hann sagði að þegar framboðið fór af stað hefði mörgum virst Borgarlínan nánast frágengin og ómögulegt að snúa við. Nú væri hins vegar, að hans mati, orðið ljóst að skipulagsmálin væru í ólestri.

Ari vísaði til ráðstefnu sem haldin var á Hilton í síðustu viku þar sem rætt var um samgöngumál. Þar hefði komið fram, að hans sögn, að upphaflegt markmið Betri samgangna hefði ekki verið að fækka akreinum, þrengja götur eða taka bílastæði.

Hann sagði að önnur hugmyndafræði hefði náð tökum á verkefninu.

„Það þyrfti að endurskoða þetta frá grunni,“ sagði Ari um Borgarlínuverkefnið.

Ari telur að hægt sé að bæta almenningssamgöngur með mun hagkvæmari hætti en nú sé stefnt að. Hann sagði jafnframt að fleiri framboð væru farin að taka undir gagnrýni sem Miðflokkurinn hefði sett fram.

Vill víkka borgina út

Ari gagnrýndi sérstaklega svokölluð vaxtarmörk og þéttingarstefnu borgarinnar. Hann sagði samning um vaxtarmörk frá árinu 2015 vera eina af meginorsökum vandans á húsnæðismarkaði.

Að hans mati hefur stefnan þrýst upp verði og gert ungu fólki sífellt erfiðara að eignast húsnæði.

„Það þarf að víkka út borgina og leyfa að byggja hagkvæmara húsnæði sem hentar betur kaupendum,“ sagði Ari.

Hann sagði ný gjöld, byggingarréttargjöld og aðrar kvaðir borgarinnar geta numið um 22 milljónum króna á 60 fermetra íbúð. Slíkur kostnaður skilaði sér að lokum til kaupenda.

Ari sagði sérstaklega alvarlegt að aðeins lítið hlutfall ungs fólks sæi fram á að geta eignast eigið húsnæði á meðan stór hluti eldri kynslóða búi í eigin húsnæði.

Hann sagði húsnæði hafa verið helstu sparnaðarleið Íslendinga og varaði við því að núverandi stefna gæti fest misskiptingu í sessi.

Segir þurfa að skera niður hjá borginni

Rekstur Reykjavíkurborgar var einnig til umræðu. Ari sagði rekstrarstöðu borgarinnar kalla á að „hverjum steini“ yrði velt við.

Aðspurður hvort skera þyrfti niður svaraði hann játandi.

„Það verður að gera það,“ sagði Ari.

Hann sagðist þó ekki vilja nefna tiltekin svið eða verkefni sem ætti að skera niður áður en hann hefði komist betur inn í reksturinn. Hann sagði þó augljóst að stjórnsýslukostnaður borgarinnar væri of hár.

Ari hélt því fram að stjórnsýslukostnaður Reykjavíkurborgar væri 50 prósentum hærri á hvern íbúa en að meðaltali í fimm stærstu sveitarfélögum landsins. Hann sagði borgina einnig vera með fleiri starfsmenn hlutfallslega en önnur sveitarfélög.

„Það blasir við að það verður að taka til,“ sagði Ari.

Vill fækka borgarfulltrúum

Ari sagði mikilvægt að stjórnmálamenn byrjuðu á sjálfum sér þegar rætt væri um aðhald. Hann vill fækka borgarfulltrúum í Reykjavík en sagði að til þess þyrfti lagabreytingu á Alþingi.

Hann gagnrýndi einnig að fyrsti varaborgarfulltrúi hvers framboðs fengi greitt hlutfall af fullum launum.

Ari sagði að þetta væri ekki endilega stærsta talan í rekstri borgarinnar en að málið hefði sterkt táknrænt gildi.

„Mér finnst mikilvægt stjórnunarlega að byrja á sjálfum sér og senda skilaboðin frá toppnum,“ sagði hann.

Útilokar núverandi meirihluta

Miðflokkurinn hefur mælst með um 10 til 11 prósenta fylgi í skoðanakönnunum og Ari sagði flokkinn gjarnan vera talinn líklegan til að ná tveimur til þremur borgarfulltrúum. Hann sagðist þó telja flokkinn undirvigtaðan í könnunum og vonast eftir betri niðurstöðu.

„Við yrðum ánægðari með fjóra heldur en þrjá,“ sagði Ari.

Aðspurður um samstarf eftir kosningar sagði hann Miðflokkinn vilja vinna með þeim sem vildu sameinast um stefnu flokksins. Hann sagði þó augljóst að það ætti ekki við um núverandi meirihluta.

Ari sagði fólk víða um borgina vera þreytt á því að ekki væri hlustað á það.

„Fólk þolir ekki þessa ofurþéttingu og vill mikla og stóra vorhreingerningu 16. maí,“ sagði Ari.

Fleiri greinar