Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Fleetwood Mac

Don't Stop

Næst

Fleetwood Mac

Don't Stop

Diljá segir meiri­hlutann stöðva upplýsingabeiðni til ESB: „Það er verið að fela eitt­hvað“

Reykjavík síðdegis skrifar
Diljá segir meiri­hlutann stöðva upplýsingabeiðni til ESB: „Það er verið að fela eitt­hvað“
Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, sakar meirihluta utanríkismálanefndar um að koma í veg fyrir að óskað verði eftir upplýsingum frá Evrópusambandinu um samskipti við íslensk stjórnvöld. Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, segir slíka beiðni óhefðbundna og vandræðalega í alþjóðasamskiptum.

Hart var tekist á um vinnu utanríkismálanefndar Alþingis vegna ESB-mála í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Tilefnið var færsla Diljár Mistar Einarsdóttur á Facebook þar sem hún gagnrýndi að meirihluti nefndarinnar hefði hafnað því að senda Evrópusambandinu upplýsingabeiðni um fundi og samskipti við íslensk stjórnvöld á yfirstandandi kjörtímabili.

Diljá sagði minnihluta nefndarinnar hafa lagt fram slíka beiðni í lok mars. Hún hefði síðan „velkst um“ hjá formönnum nefndarinnar og meirihlutanum þar til afdráttarlaust svar hefði fengist um að ekki yrði orðið við beiðninni.

„Maður hlýtur auðvitað að spyrja sig að því af hverju það stafi,“ sagði Diljá.

Segir beiðnina óvenjulega

Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, hafnaði því að eitthvað væri verið að fela. Hann sagði þegar hafa verið óskað eftir upplýsingum frá íslenskum stjórnvöldum, meðal annars utanríkisráðuneyti og forsætisráðuneyti, um samskipti þeirra við Evrópusambandið.

Hann sagði að þingskapareglur um upplýsingabeiðnir þingnefnda tækju fyrst og fremst til íslenskra stjórnvalda. Það væri annað mál að beina beiðni til erlendra stjórnvalda eða stofnana um minnisblöð og punkta frá fundum.

„Það er mjög óhefðbundið í alþjóðasamskiptum að eiga fund með einhverju erlendu ríki og fara síðan fram á að þau afhendi sín minnisblöð og sína punkta frá fundi sem við höfum átt með þeim,“ sagði Pawel.

Hann tók dæmi af því að ef þýska þingið myndi óska eftir fundargerðum eða minnisblöðum íslenskra stjórnvalda af fundum við Þýskaland myndi það vekja athygli.

„Það er verið að fela eitthvað“

Diljá tók undir að ESB væri ekki skylt að veita Alþingi upplýsingarnar en sagði það ekki svara því hvers vegna ekki mætti einfaldlega spyrja. Hún sagði hlutverk utanríkismálanefndar meðal annars vera að eiga samskipti við erlend ríki og alþjóðastofnanir.

„Já, það er verið að fela eitthvað, mér finnst þetta blasa við,“ sagði Diljá þegar hún var spurð hvort eitthvað væri falið.

Hún sagði eðlilegt að nefndin leitaði allra upplýsinga vegna málsins, sérstaklega þar sem stjórnarliðar hefðu sjálfir talað um fordæmalausar aðstæður. Hún velti því upp hvort ótti væri við að svör frá Evrópusambandinu gætu verið á skjön við upplýsingar frá íslenskum stjórnvöldum.

Aðspurð sagðist hún þó hvorki hafa upplýsingar um að slíkir fundir hefðu farið fram né að þeir hefðu ekki farið fram. Markmiðið væri að varpa ljósi á aðdraganda málsins.

Deila um gestakomur og vinnulag nefndarinnar

Deilan snerist ekki eingöngu um upplýsingabeiðnina. Diljá gagnrýndi einnig að ekki ætti að kalla fleiri gesti fyrir nefndina. Hún sagði eðlilegt að eftir fjölda funda og umsagna vöknuðu nýjar spurningar sem þyrfti að fá svör við.

Hún sagði algengt í stórum þingmálum að nefndir héldu lokafundi þar sem mál væru tekin saman og ósvaraðar spurningar ræddar. Í þessu tilviki væri svarið hins vegar einfaldlega nei.

Pawel sagði hins vegar að vel hefði verið staðið að málinu. Í mars hefði verið lagt fram ítarlegt plan um vinnu nefndarinnar og síðar hefði verið gefinn frestur til að óska eftir fleiri gestum. Hann sagði á fimmta tug gesta hafa komið fyrir nefndina, þar á meðal fulltrúa Feneyjanefndar, Lagastofnunar og Hagfræðistofnunar.

„Ég tel að það sé einfaldlega bara rétt að vinna málið áfram,“ sagði Pawel.

Segir tímapressu ráða för

Diljá sagði stjórnarþingmenn þurfa að halda ákveðnum tímaramma vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Þess vegna væri, að hennar mati, ekki rými til að spyrja frekari spurninga.

Pawel hafnaði því að málið væri unnið í myrkri. Hann sagði mikla upplýsingaöflun þegar hafa farið fram og minnti á að þjóðin ætti að taka endanlega ákvörðun um hvort halda ætti áfram viðræðum við Evrópusambandið.

„Það hefur verið mjög öflug upplýsingaöflun í þessu máli hingað til,“ sagði Pawel.

Fleiri greinar