Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Mike & The Mechanics

Over My Shoulder

Næst

Mike & The Mechanics

Over My Shoulder

Flutningar á fyrstu vindmyllunni í Vaðölduver hefjast í vikunni

Reykjavík síðdegis skrifar
Flutningar á fyrstu vindmyllunni í Vaðölduver hefjast í vikunni
Flutningar á fyrstu vindmyllunni í Vaðölduver hefjast aðfararnótt 7. maí og verða meðal umfangsmestu þungaflutninga sem ráðist hefur verið í hér á landi. Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers, sagði í Reykjavík síðdegis að fram undan væru vikur þar sem fluttir yrðu yfir þrjú hundruð stakir hlutar frá Þorlákshöfn upp í Vaðöldu.

Sigurgeir sagði að hver vindmylla kæmi í þrettán leyfisskyldum hlutum og að flutningurinn tæki þrjá daga fyrir hverja myllu.

„Það tekur þrjá daga að flytja hverja vindmyllu frá Þorlákshöfn upp í Vaðöldu.“

Alls verða 28 vindmyllur reistar í verinu. Lengstu einstöku hlutarnir eru spaðarnir, sem eru 68 metra langir. Með spaðann í hæstu stöðu verða myllurnar um 150 metra háar.

Flutningarnir fara fram á nóttunni

Að sögn Sigurgeirs er flutningaleiðin frá Þorlákshöfn um Suðurstrandarveg, Þorlákshafnarveg og Eyrarbakkaveg, þaðan suður fyrir Selfoss og síðan inn á þjóðveg og upp Landveg að Vaðöldu.

Flutningarnir fara fram á nóttunni til að lágmarka áhrif á umferð. Hann sagði hver ferð geta tekið allt að sex tíma, þó ekki verði tafir á hverjum stað nema tímabundið.

Sigurgeir sagði lögreglu stýra umferð á meðan á flutningum stendur og bað fólk um þolinmæði.

Staðurinn valinn eftir margra ára rannsóknir

Vaðalda var valin fyrir vindorkuverið eftir áralangar rannsóknir. Sigurgeir sagði svæðið henta vel bæði vegna vindafars og vegna þess að þar væru innviðir Landsvirkjunar þegar til staðar.

„Þetta er vindasamasti staður sem er gott fyrir framleiðsluna.“

Hann benti einnig á að verið væri reist í hjarta framleiðslusvæðis Landsvirkjunar á Þjórsárdalssvæðinu, þar sem nálægðin við vatnsaflsvirkjanir skipti miklu máli. Vindorkan þyrfti nefnilega afl á móti þegar vindur væri lítill og það kæmi þá frá vatnsafli.

Á að styrkja raforkukerfið

Heildarafl Vaðölduvers verður yfir 120 megavött. Sigurgeir sagði verkefnið vera næsta skref í að tryggja raforku og styðja við orkuskipti hér á landi.

Hann sagði vindorkuverið framleiða orku inn á kerfið þegar vindur væri til staðar, en samspil vindorku og vatnsafls gerði það að verkum að hægt væri að byggja upp öflugri og sveigjanlegri orkuvinnslu en ella.

Fleiri greinar