Fréttir
Fréttir
18:30 - 18:55

Núna

Taylor Swift

The Fate Of Ophelia

Næst

Ásgeir

Against The Current

Snjóföll og hálka á heiðum vestan­lands í næstu viku

Reykjavík síðdegis skrifar
Snjóföll og hálka á heiðum vestan­lands í næstu viku
Þótt sumarið sé formlega gengið í garð bendir veðurspáin ekki til neins verulegs vorbakslags á næstu dögum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir kaldari loftmassa vissulega á leiðinni í næstu viku, en að kuldakastið verði fremur vægt og snúi einkum að heiðum vestanlands.

Einar ræddi veðurhorfur næstu daga í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og sagði hlýtt og milt veður halda áfram út helgina. Hann sagði hitann víða vera á bilinu fimm til tíu stig á láglendi og að áfram mætti búast við góðri vorkomu um mestallt land.

Hlýtt áfram fram yfir helgi

Að sögn Einars verður tiltölulega rólegt veður um helgina, með hlýju lofti yfir landinu. Hann sagði að víða væri þegar farið að grænka og að snjór og klaki væru smám saman að hörfa til í fjöllum.

Vestanlands megi þó búast við meiri skýjum og þoku en fyrir norðan og austan, þar sem veður verði að öllum líkindum bjartara.

Rigning á mánudag og kaldari loftmassi í kjölfarið

Einar sagði að á mánudag væri spáð rigningu um stóran hluta landsins í sunnanátt. Eftir það taki við kuldaskil með kaldara lofti úr vestri.

Hann sagði þó að kuldinn liti nú vægar út en spár höfðu áður bent til.

„Það er meira hægt að tala bara um eins og vorkoman er á Íslandi. Hún er ekkert bein og breið.“

Að hans sögn verði hiti líklega víða á bilinu tvö til fjögur stig frá þriðjudegi og fram eftir næstu viku, með næturfrosti inn til landsins.

Hálka helst á heiðum vestanlands

Einar lagði áherslu á að umrædd snjóföl og hálka ættu fyrst og fremst við heiðar vestanlands, þar á meðal Hellisheiði, Mosfellsheiði, Snæfellsnes og heiðar norðanlands og vestan.

„Þetta er óskaplega aumingjalegt þetta vorhret, ef við ættum að kalla það þannig,“ sagði Einar.

Hann sagði ekkert benda til „alvöru hrets“ ef núverandi spár gengju eftir, enda væri kuldinn ekki að koma með hefðbundnu norðanáhlaupi heldur langa leið yfir Grænland úr vestri og suðvestri.

Besta veðrið fyrir norðan og austan

Spurður hvar besta veðrið yrði um helgina sagði Einar að Norður- og Austurland kæmu best út meðan vindáttin væri suðvestlæg. Þar yrði sólríkara og hlýrra en víða annars staðar.

Á suðvesturhorninu yrði hins vegar líklegra til að vera skýjaðra, með mögulegri súld eða bleytu að næturlagi vegna raka af hafi.

Engin trúverðug sumarlangtímaspá 

Einar sagði of snemmt að fullyrða nokkuð um sumarið í heild. Langtímaspár fyrir júní, júlí og ágúst væru þegar komnar fram, en þær bentu ekki allar í sömu átt.

„Það er mjög óábyrgt að vera að segja eitthvað vegna þess að forsendurnar eða gögnin sem við höfum gefa bara ekki tilefni til þess.“

Að hans sögn er því ekki hægt að draga neina áreiðanlega línu um veðurfar sumarsins að svo stöddu.

Fleiri greinar