Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Robbie Williams

Rock DJ

Næst

Jet Black Joe & Sigríður Guðnadóttir

Freedom

Kveðst hafa hreinsað drauga­gang úr Hvítárnesskálanum

Reykjavík síðdegis skrifar
Kveðst hafa hreinsað drauga­gang úr Hvítárnesskálanum
Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur, heilari og dáleiðari, sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að hún hefði nýverið hreinsað draugagang úr Hvítárnesskála Ferðafélags Íslands. Að hennar sögn hafði reiður andi látið þar öllum illum látum en hún kvaðst hafa talað beint til hans og hjálpað honum „heim“.

Vigdís, sem ræddi nýverið sama mál í hlaðvarpinu Hið yfirnáttúrulega, sagði sögur af Hvítárnesskála hafa gengið lengi og að margir hefðu í gegnum tíðina ekki fengið þar svefnfrið.

Eitt þekktasta draugabæli landsins

Að sögn Vigdísar er Hvítárnes við Hvítárvatn á Kili eitt þekktasta draugabæli landsins. Hún sagði að þar hefðu árum saman gengið sögur af banki, óróa og fólki sem hefði hreinlega flúið skálann um miðja nótt.

Hún rifjaði meðal annars upp sögu af konu sem á að hafa keyrt alla leið upp á Hveravelli vegna þess að hún gat ekki sofið í Hvítárnesi.

Fór þangað án þess að vita af sögunum

Vigdís sagði að þegar hún réð sig til starfa í skálanum hefði hún í raun ekkert vitað um orðsporið sem fylgdi honum. Það hafi ekki verið fyrr en hún sagði syni sínum frá ráðningunni að hann spurði hana hvort hún vissi ekki hvað sagt væri um staðinn.

Þá hafi hún heyrt sögur af tveimur konum sem ættu að sjást þar, önnur hvítklædd og hin einhent. Hún sagðist þó hafa ákveðið að láta það ekki stoppa sig.

Eftir komuna í Hvítárnes sagði Vigdís að henni hefði verið rétt ritgerð um draugaganginn á staðnum, þar sem teknar hefðu verið saman gamlar frásagnir úr gestabókum og viðtölum. Hún sagðist sjálf hafa byrjað að rannsaka svæðið og legið úti í gömlum tóftum til að reyna að átta sig á sögunni.

Að hennar sögn tengdist draugagangurinn tveimur konum og karli sem hún lýsti sem mjög reiðum. Hún taldi að konurnar hefðu ekki verið að angra fólk, heldur hefði það einkum verið karlinn sem gerði vart við sig inni í húsinu.

Vaknaði við „djöfulgang og læti“

Vigdís sagði að ekkert sérstakt hefði gerst fyrstu þrjár næturnar sem hún var í skálanum. Hún hefði vaknað við mikil læti nóttina þar á eftir.

„Ég vaknaði upp við það að það var eins og stóll væri dreginn til af mikilli hörku eftir gólfinu beint fyrir ofan mig og bara djöfulgangur og læti í gólffjölunum,“ sagði hún.

Að hennar sögn heyrði enginn annar í húsinu þessi hljóð, þótt þar væru gestir sofandi.

Talaði beint til andans

Vigdís sagðist fyrst hafa haldið að eitthvað væri í gangi hjá gestum í húsinu. Síðan hafi hún áttað sig á því að hún teldi þetta vera andann sem hefði verið orðaður við staðinn.

Þá hafi hún einfaldlega talað beint til hans.

„Vertu blessaður vinur, nú skalt þú bara drífa þig heim. Ég skal bara hjálpa þér,“ sagði hún við drauginn.

Segir aðra hafa staðfest að óróinn sé horfinn

Samkvæmt Vigdísi dugði það til. Hún sagði að síðar hefðu margir staðfest við sig að sami óróinn væri ekki lengur til staðar í Hvítárnesi.

„Hann er farinn,“ sagði Vigdís sem tekur að sér að aðstoða fólk sem telur sig finna fyrir draugagangi eða óútskýrðum látum á heimilum sínum. 

Fleiri greinar