„Það er heldur betur hressilega búið að taka af lagernum,“ sagði Anna Fríða. Hún bætti við að í dag væri „síðasti framleiðsludagurinn á páskaeggjum hjá Nóa Síríus.“
Fylla á hillurnar á morgnana en lítið til eftir hádegi
Anna Fríða sagði stöðuna í verslunum vera þannig að fyllt væri á stæðurnar snemma dags, en það sem færi út væri fljótt að hverfa.
„Við fyllum á stæðurnar að morgni til og upp úr hádegi eða eftir hádegi þá er bara lítið eftir,“ sagði hún.
Að hennar sögn er fólk löngu byrjað að kaupa og smakka páskaeggin, mörgum dögum áður en páskarnir renna upp. Hún sagðist raunar hvetja fólk til þess.
„Ekki í mínum heimi, nei,“ sagði hún þegar hún var spurð hvort það væri ekki bannað að byrja að borða páskaegg fyrir páska. „Þvert á móti þá hvet ég fólk til þess að byrja snemma og smakka sig aðeins til.“
Framleiða um 600 þúsund egg fyrir páskana
Eitt það athyglisverðasta sem fram kom var magnið sem Nóa Síríus framleiðir fyrir páskana. Anna Fríða sagði fyrirtækið nú vera að framleiða í kringum 600 þúsund páskaegg.
Þar er bæði átt við stærri eggin og þau smærri, auk þess sem fyrirtækjasala fellur undir töluna. Hún sagði þó ljóst að mest færi af stóru eggjunum.
Egg númer fjögur langvinsælast
Spurð hvaða stærðir og tegundir væru vinsælastar sagði Anna Fríða að eitt egg stæði þar upp úr.
„Það er páskaegg númer fjögur. Það er langvinsælasta stærðin okkar og er þar af leiðandi vinsælasta egg landsins.“
Þar á eftir kæmi páskaegg númer fimm. Hún sagði þetta vera hreinu mjólkursúkkulaðieggin, en bætti við að svokölluð séregg, með sælgæti inni í skelinni, væru líka að klárast mjög hratt.
Páskaunginn breyttist í fyrra
Í viðtalinu kom einnig til tals breyting sem vakti talsverða athygli í fyrra, þegar hinn klassíski fiðraði páskaungi vék fyrir nýjum fígúrum ofan á páskaegginu.
Anna Fríða sagði viðbrögðin hafa verið góð og að fyrirtækið hefði komið með þrjár mismunandi týpur af páskaunganum. Að hennar sögn væru þetta eigulegri hlutir en áður og margir viðskiptavinir væru farnir að gera sitt eigið páskaskraut úr þeim.
Hún nefndi meðal annars að sumir væru farnir að fela páskaungann á svipaðan hátt og fólk þekkir úr Elf on the Shelf fyrir jólin.
Passa að hvert einasta egg nýtist
Anna Fríða sagði fyrirtækið fylgjast mjög náið með sölunni og laga framleiðsluna að eftirspurninni. Hún sagði Nóa Síríus vera „mjög gagnadrifið“ í ákvörðunum sínum og að markmiðið væri að nýta hvert egg.
Hún benti jafnframt á að páskaeggin endist lengi. Sjálf hefði hún nýlega séð egg í framleiðslupökkun með lokadagsetningu 24. desember, og sagði því vel hægt að bjóða páskaegg langt fram eftir ári.
Nýtt innlent eignarhald leggst vel í starfsfólkið
Undir lok viðtalsins var Anna Fríða spurð út í nýtt eignarhald Nóa Síríus, eftir að Alfa framtakssjóður festi kaup á fyrirtækinu af erlendum aðilum. Hún sagði það leggjast vel í starfsfólkið.
„Við erum bara hrikalega spennt. Gaman að vera komin aftur í innlent eignarhald og við getum bara ekki annað sagt en við lítum bara björtum augum til framtíðar.“
Hún sagði ekkert tímabært að fara yfir mögulegar breytingar, en að spennandi tímar væru fram undan.
Hvetur fólk til að drífa sig að kaupa páskaegg
Spurð hvort fólk hefði enn smá svigrúm til að bíða með innkaupin sagði Anna Fríða svarið frekar skýrt.
„Ef þið ætlið að tryggja ykkur Nóa Síríus páskaegg, þá skuluð þið drífa ykkur,“ sagði hún.
Hún sagði fyrirtækið vilja passa upp á að eggin færu öll „í réttar hendur og til fólksins“, en bætti við að staðan væri einfaldlega sú að lagerinn væri búinn.
„Lagerinn er tómur og allt komið út til verslana.“









