Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Taylor Swift

Opalite

Næst

James Arthur

Say You Won't Let Go

Collab nær fót­festu á er­lendum mörkuðum

Reykjavík síðdegis skrifar
Collab nær fót­festu á er­lendum mörkuðum
Í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag sagði Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, að útflutningur á Collab hefði gengið þokkalega og að milljónir dósa hefðu þegar farið úr landi. Hann sagði drykkinn nú seldan í Austurríki, Þýskalandi og Danmörku, auk þess sem stefnt sé á innkomu í Sviss á næstunni.

Í viðtalinu ræddi Óli Rúnar bæði vinsældir Collab á Íslandi, verðmun á milli landa og hvernig gengið hefði að koma vörunni inn á erlenda markaði. Hann sagði stöðuna vera ólíka eftir mörkuðum en að sagan á bak við vöruna og uppruni hennar skipti þar miklu máli.

Segir vinsældirnar byggja á blöndu af innihaldi og bragði

Aðspurður um hvers vegna Collab hefði náð svona sterkri stöðu sagði Óli Rúnar líklegt að vinsældirnar skýrðust af nokkrum þáttum saman. Þar nefndi hann bæði kollagenið, koffínið og bragðið.

Hann sagði Collab í dag vera eitt verðmætasta neysluvörumerki landsins og að það væri klárlega eitthvað við samsetningu vörunnar sem félli vel í kramið hjá neytendum.

Í þættinum var einnig komið inn á ábendingu um að Collab hefði sést á lægra verði í Nettó í Danmörku en á Íslandi. Óli Rúnar sagði að það ætti ekki við alla jafna.

Að hans sögn væru hilluverð erlendis almennt ekki lægri en hér heima, en á mörkuðum á borð við þann danska kæmi fyrir að verslanir færu í mjög afgerandi tilboð tímabundið. Hann nefndi að keðjur á borð við Nettó í Danmörku keyrðu stundum verð niður í stuttan tíma sem hluta af sínu sölukonsept.

Hann benti jafnframt á að samanburðurinn gæti verið villandi þar sem skilagjald væri ekki innifalið í hilluverði í Skandinavíu með sama hætti og hér á landi. Það gæti skýrt hluta af verðmuninum, jafnvel um nokkrar tugir króna á dós.

Austurríki og Danmörk í ólíkri stöðu

Óli Rúnar sagði útflutninginn ganga misjafnlega eftir mörkuðum. Í Austurríki hefði dreifingin til að mynda orðið mjög mikil á skömmum tíma og Collab væri þar komið í vel yfir 1.200 verslanir.

Til samanburðar nefndi hann að verslanirnar á Íslandi væru um 110 talsins, þannig að umfangið í Austurríki væri allt annað. Hann sagði þó að svo hröð dreifing gæti líka skapað áskoranir, þar sem fyrirtækið þyrfti að vinna markaðsmálin í takt við þann vöxt.

Í Danmörku væri staðan önnur. Þar væri varan í færri búðum en salan í hverri verslun hins vegar talsverð. Hann sagði jafnframt að samþykkt hefði verið meiri dreifing þar í landi, meðal annars inn í 7-Eleven og Alma, og að það tæki gildi á haustmánuðum.

Allt framleitt hér á landi

Í viðtalinu kom fram að allt Collab sem selt er erlendis sé framleitt á Íslandi. Óli Rúnar sagði það vera mikilvægan hluta af sögu vörumerkisins, ekki síst vegna þess að kollagenið sé unnið úr íslensku fiskroði sem falli til við fiskvinnslu.

Að hans mati væri það einn af þeim þáttum sem gerðu vöruna sérstaka á erlendum mörkuðum. Hann sagði sjálfbærnivinkilinn og upprunasöguna hjálpa mjög þegar kæmi að því að kynna vöruna fyrir kaupendum og keðjum erlendis.

Hann orðaði það svo að fyrirtækið fengi víða nánast „rauða dregilinn“ þegar varan væri kynnt, enda væri oft erfitt fyrir nýjar vörur að komast yfir fyrsta þröskuldinn og inn í verslanir.

Selja inn í fáa glugga á ári

Óli Rúnar sagði eitt af því sem fyrirtækið þyrfti að aðlagast erlendis vera hversu hæg og fyrirfram skipulögð ákvarðanataka gæti verið hjá stórum keðjum. Ólíkt því sem tíðkaðist á Íslandi væru oft aðeins tveir gluggar á ári þar sem hægt væri að selja vöru inn í dreifingu.

Það þýddi að vinna sem færi fram núna gæti til dæmis ekki skilað sér í sölu fyrr en hálfu ári síðar. Að hans sögn væri þetta því allt annað umhverfi en sá kviki íslenski markaður sem fyrirtækið þekkti best.

Segir flutningana ekki stærsta vandann

Aðspurður hvort það væri ekki bæði dýrt og flókið að flytja svona þunga vöru frá Íslandi út á Evrópumarkað sagði Óli Rúnar að vissulega kostaði það sitt. Hann sagði þó að Collab væri í hávirðisflokki og að neytendur væru tilbúnir að greiða fyrir slíka vöru.

Því væri flutningskostnaðurinn ekki það sem stæði helst í vegi fyrir vextinum. Hann benti jafnframt á að skip kæmu full til landsins en færu ekki jafnan jafn full til baka, og sagði Ölgerðina einfaldlega vera að reyna að taka þátt í að jafna þá stöðu.

Bandaríkin bíða

Undir lok viðtalsins var Óli Rúnar spurður hvort Bandaríkjamarkaður væri næst á dagskrá. Hann sagði mikið vera bankað á dyrnar, en að fyrirtækið væri meðvitað að reyna að gera ekki of mikið í einu.

Að hans sögn væri ástæðan fyrir því að ekki hefði enn verið farið af stað þar fyrst og fremst sú að halda fókus á þeim mörkuðum sem þegar væri verið að vinna. Hann bætti þó við að sá tími myndi koma.

Fleiri greinar