„Þetta er hundleiðinlegt,“ sagði Ragnheiður Þorkelsdóttir, forstöðumaður upplifunar og vöruþróunar hjá VÍS, en hún var gestur þáttarins ásamt Sigrúnu A. Þorsteinsdóttur, sérfræðings í forvörnum hjá sama fyrirtæki. Þær staðfestu að engar slíkar tryggingar séu í boði hér á landi í dag en útilokuðu ekki að skoða málið síðar.
Flókið að tryggja veðrið
Að sögn Ragnheiðar væri afar snúið að þróa svokallaða „veðurtryggingu“. Slík vara þyrfti að byggja á nákvæmum mælikvörðum, svo sem hitastigi, úrkomu eða fjölda sólartíma – og jafnvel lengd óhagstæðra veðurskilyrða.
Sigrún tók í sama streng og benti á að ekki dygði að rigning í stuttan tíma gæfi rétt til bóta. „Þetta þyrfti að vara í einhvern tíma og vera skilgreint mjög nákvæmlega,“ sagði hún.
Vonbrigði ekki bótaskyld
Í umræðunni kom skýrt fram að almennar ferðatryggingar ná ekki yfir upplifun ferðalanga af veðri. „Vonbrigði falla ekki undir ferðatryggingar,“ sagði Ragnheiður.
Ferðatryggingar taki fremur til hefðbundinna atvika, svo sem seinkana, týnds farangurs eða veikinda. Þá benti hún á að greiðslukort og heimilistryggingar veiti oft víðtæka vernd, sérstaklega þegar þau eru nýtt saman.
Dæmi um sérhæfðar tryggingar
Þrátt fyrir að veðrið sé ekki tryggjanlegt hafa ýmsar óhefðbundnar tryggingar verið í boði. Ragnheiður rifjaði upp svokallaða „0–0 tryggingu“ sem bauðst ferðalöngum á knattspyrnuleiki erlendis, þar sem bætur fengust ef leikur endaði markalaus.
Sigrún nefndi einnig dæmi erlendis frá þar sem einstaklingar tryggja til dæmis fingur sína eða rödd, eftir því sem starf þeirra krefst.
Gæludýratryggingar vinsælar
Í viðtalinu kom jafnframt fram að gæludýratryggingar njóti sífellt meiri vinsælda. Sigrún sagði kostnað vegna aðgerða og veikinda dýra geta verið mikinn og því telji margir mikilvægt að tryggja þau snemma.
Hún nefndi jafnframt að dýr gætu oft lent í óvæntum atvikum – allt frá því að gleypa óæskilega hluti til þess að þurfa dýra læknismeðferð.
Nýjar vörur í skoðun
Spurð hvort möguleiki væri á að slíkar veðurtryggingar yrðu þróaðar í framtíðinni útilokaði Ragnheiður það ekki með öllu. „Það er aldrei að vita ef við finnum einhvern góðan flöt á því,“ sagði hún og bætti við að stöðugt væri unnið að þróun tryggingavara.
Á meðan þurfa ferðalangar hins vegar áfram að sætta sig við að veðrið sé eitt af því fáa sem ekki verður tryggt – jafnvel á vinsælustu sólarströndum Evrópu.









