Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Marvin Gaye

Sexual Healing

Næst

Elton John & Dua Lipa

Cold Heart [PNAU Remix]

Nýtt app til að ein­falda akstursdagbók

Bítið skrifar
Nýtt app til að ein­falda akstursdagbók
Fjöldi fólks gæti verið að fara á mis við skattfrjálsan ökutækjastyrk af því akstur fyrir vinnuna er ekki skráður. Eva Dís Sigrúnardóttir kynnti í Bítinu á Bylgjunni appið Skreppa sem á að halda sjálfvirkt utan um akstur á einkabíl og einfalda skil á akstursdagbók til vinnuveitanda. 

Eva Dís sagði að hugmyndin hefði orðið til út frá því að auðvelda fólki að sækja skattfrjálsar greiðslur sem það ætti rétt á ef það keyrði um á einkabílnum í þágu vinnunnar. Hún lýsti því að þegar farið var að ræða við fólk hefði komið í ljós að margir vissu ekki einu sinni að þessi möguleiki stæði til boða.

Að hennar sögn á þetta meðal annars við um sölufólk og starfsfólk í smærri fyrirtækjum sem er sent í ýmis erindi á eigin bíl. Hún sagði líka að margir sem vissu af réttinum létu það samt eiga sig því skráningin þætti of leiðinleg og þunglamaleg.

Akstursdagbókin of mikið vesen

Eva Dís sagði að fólk hefði lengi annaðhvort þurft að skrifa ferðir niður í glósur eða fylla út hefðbundna akstursdagbók á blaði. Hún orðaði það þannig að mörgum fyndist þetta einfaldlega of mikið vesen og því væri auðvelt að láta það ógert.

Notendur hefðu þá þurft að muna hverja ferð, skrá kílómetra, dagsetningar og tilgang aksturs og halda svo utan um gögnin mánuðum saman. Skreppa á að leysa það með því að skrá aksturinn rafrænt og sjálfkrafa í bakgrunni símans.

Appið skráir aksturinn sjálft

Eva Dís útskýrði að notendur gætu stillt í appinu hvenær það ætti að mæla akstur, til dæmis á vinnutíma. Síðan þyrfti aðeins að opna appið og flokka ferðirnar sem vinnuferðir eða einkafærslur.

Vinnuferðirnar fara þá inn í akstursdagbók sem hægt er að senda rafrænt til vinnuveitanda. Það sem áður tók tíma og fyrirhöfn ætti með þessu að verða að nokkrum smellum í símanum.

Upphæðirnar geta hlaupið á tugum þúsunda

Eva Dís lagði áherslu á að upphæðirnar gætu safnast upp þó aksturinn virðist ekki mikill frá degi til dags. „Þetta er skattfrjálst. Og þetta er ekki eitthvað sem er inni í laununum þínum heldur, þú ert að fá þetta ofan á launin,“ sagði hún.

Hún sagði frá eigin reynslu og kvaðst sjálf áður hafa fengið 20 þúsund króna fastan ökutækjastyrk án þess að átta sig á því að raunverulegur akstur í starfi gæti hafa gefið henni rétt á miklu hærri upphæð. „Ég hefði getað verið að sækja svona 50 til 80 þúsund á mánuði,“ sagði hún.

Gögnin til staðar ef skatturinn spyr

Eva Dís benti einnig á að fólk sem fær fastan ökutækjastyrk, eða verktakar sem greiða sér slíkan styrk, þurfi að geta sýnt fram á gögn úr akstursdagbók ef skattyfirvöld óska eftir þeim.

Með appinu eigi allar upplýsingar að vera aðgengilegar aftur í tímann ef á þarf að halda. Lausnin er því ekki aðeins hugsuð til að sækja greiðslur heldur líka til að halda utan um gögn sem geta skipt máli síðar.

Lausn líka fyrir fyrirtæki

Eva Dís sagði að Skreppa væri ekki aðeins fyrir einstaklinga heldur einnig fyrir fyrirtæki. Hún greindi frá því að fyrirtæki gætu fengið aðgang að bakenda þar sem hægt væri að fara yfir akstur starfsfólks áður en hann væri samþykktur.

Kerfið reiknar svokallaðan hagkvæmnistuðul sem getur sýnt hvort ekið hafi verið eðlilega vegalengd fyrir fyrirtækið. Þá er einnig hægt að stilla sjálfvirkar samþykktir á ferðir eftir fyrirfram ákveðnum viðmiðum.

Fleiri greinar