Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Ragga Gröndal

Má ég?

Næst

4 Non Blondes

What's Up?

Talið að um fjögur þúsund Ís­lendingar glími við Long Covid

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Talið að um fjögur þúsund Ís­lendingar glími við Long Covid
Einkenni svokallaðs Long Covid geta verið afar fjölbreytt og haft áhrif á mörg líffærakerfi líkamans. Talið er að allt að eitt prósent þjóðarinnar glími við slík einkenni hér á landi, sem gæti þýtt að um fjögur þúsund Íslendingar búi við ástandið. 

Þetta kom fram í viðtali við Gunnar Örn Svavarsson, sérfræðing í sjúkraþjálfun sem sjálfur er orðinn öryrki vegna Long Covid, í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Alþjóðlegur dagur Long Covid var í gær, 15. mars.

Einkenni geta verið mjög mismunandi

Að sögn Gunnars eru einkenni Long Covid afar breytileg og engir tveir einstaklingar upplifa sjúkdóminn á sama hátt. Hann segir ástandið meðal annars geta tengst truflun í ósjálfráða taugakerfinu, sem stjórnar ýmsum lífsnauðsynlegum ferlum líkamans án þess að fólk hugsi sérstaklega um þá.

„Þreytan, svona mikil örmögnun, er kannski það stærsta,“ sagði Gunnar. Algeng einkenni sem hann nefndi eru meðal annars:

  • mikil og viðvarandi þreyta
  • örgögnunarköst eftir líkamlegt eða andlegt áreiti
  • svefntruflanir
  • vöðva- og liðverkir
  • öndunarerfiðleikar
  • höfuðverkur
  • breytingar á bragðskyni
  • erfiðleikar með hugsun og einbeitingu, svokölluð heilaþoka

Einkenni geta auk þess haft áhrif á hjarta, lungu, æðakerfi, taugakerfi og meltingarfæri.

Tengist veirunni sjálfri

Spurður hvort Long Covid tengist sjálfri Covid-19 veirunni eða bólusetningum sagði Gunnar rannsóknir benda til þess að um sé að ræða afleiðingar sýkingarinnar sjálfrar.

Hann sagði vísbendingar um að veiran geti haft áhrif á orkustöðvar í vöðvum, svokölluð hvatbera, sem geti leitt til þess að vöðvar sýrni hratt og framleiðsla mjólkursýru aukist. Í sumum tilvikum hafi jafnvel fundist mjólkursýra í heila- og mænuvökva.

Veiktist um jólin 2020

Gunnar Örn segir fjölskyldu sína hafa smitast af Covid-19 um jólin árið 2020. Í fyrstu hafi hann talið að um hefðbundna lungnabólgu væri að ræða og að bataferlið tæki einfaldlega tíma.

„Mér fannst mjög skrítið að ég skyldi ekki vera að ná mér hraðar,“ sagði hann.

Einkennin hurfu hins vegar ekki heldur versnuðu smám saman. Hann lýsir því að einföld verkefni, eins og að ganga upp tröppur, hafi orðið honum afar erfið og að hann hafi upplifað sig sem „einn tíunda af sjálfum sér“.

Lærði að lifa með takmörkunum

Gunnar starfaði áður við eigin rekstur í sjúkraþjálfun en neyddist til að selja sinn hlut í fyrirtækinu vegna veikindanna.

Hann segir að stór hluti bataferlisins felist í að læra að stilla áreiti og finna eigin mörk.

„Ef þú ert að gera eitthvað eitt, þá verðurðu að passa þig að gera ekki eitthvað annað,“ sagði hann og bætti við að hvíld og skipulag skipti miklu máli.

Hann lýsir því einnig að hávaði og mannmargir staðir geti reynst honum mjög erfiðir.

Talið er að tugir milljóna glími við vandann

Samkvæmt því sem Gunnar segir er talið að um 50 milljónir manna um heim allan glími við Long Covid. Fjöldi rannsókna sé nú í gangi víða í heiminum en enn skorti skýrar greiningaraðferðir.

Greining byggist því enn að miklu leyti á einkennum og sjúkrasögu.

Gunnar telur mikilvægt að halda alþjóðlegan dag Long Covid til að vekja athygli á vandanum og stöðu þeirra sem glíma við langvarandi afleiðingar sjúkdómsins.

Hann segir skilning innan heilbrigðiskerfisins fara batnandi, en að enn finnist dæmi um að fólk upplifi að einkenni þess séu ekki tekin alvarlega.

„Þetta er nýtt fyrirbæri og það tekur tíma fyrir kerfið að átta sig á því.“ 

Fleiri greinar